Lögreglan í Lúxemborg rannsakar Kaupþing

Lög­reglu­yf­ir­völd í Lúx­em­borg hafa haft Lindsor-málið svo­kall­aða til rann­sóknar árum saman og svo gæti farið að íslenskir stjórn­endur Kaup­þings, sem og aðrir Íslend­ingar sem tengj­ast mál­inu, verði sak­sóttir þar í landi.

Embætti sér­staks sak­sókn­ara rann­sakar enn hluta máls­ins og mun taka ákvörðun á næstu miss­erum um hvort ákært verði í honum fyrir íslenskum dóm­stólum. Ákvörð­unin verður tekin í sam­starfi við lög­reglu­yf­ir­völd í Lúx­em­borg og með til­liti til þess hluta máls­ins sem þar er til rann­sóknar. Ákveði báðir aðilar að ákæra á grund­velli Lindsor-rann­sókn­ar­innar gætu þeir sem þar eru til rann­sóknar verið sak­sóttir í tveimur löndum vegna hennar, en þó ekki fyrir sömu sakir á báðum stöðum.

Sér­stakur sak­sókn­ari fram­kvæmdi meðal ann­ars rétt­ar­beiðni hér­lendis í fyrra vegna rann­sókn­ar­innar í Lúx­em­borg. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur málið undið veru­lega upp á sig og snýst nú um mun fleiri fjár­magns­færslur en þær 171 millj­ónir evra, um 26,5 millj­arða króna, sem voru færðar til félags­ins Lindsor Holding Corporation í hrun­inu og var rót upp­haf­legrar rann­sóknar íslenskra rann­sókn­ar­að­ila.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings og einn þeirra sem legið hafa undir grun í mál­inu, segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi ekk­ert heyrt af rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara á Lindsor-mál­inu í ein­hver ár. „Það er á sjötta ár síðan þeir gerðu hús­leit heima hjá mér vegna þessa máls og á fimmta ár síðan ég var dæmdur í gæslu­varð­hald vegna þeirrar rann­sóknar, svo ég hef nú gert ráð fyrir að þeirri rann­sókn sé hætt. Lög­reglu­yf­ir­völd í Lúx­em­borg hafa ekki yfir­heyrt mig vegna þessa máls né ann­arra mála.“
Hreiðar Már seg­ist ekki geta að öðru leyti tjáð sig efn­is­lega um ein­stök mál sem sér­stakur sak­sókn­ari hefur verið að rann­saka á hendur honum.

[embed]http://issuu.com/kjarninn/docs/2014_06_26/1[/embed]

Tugir milljarða til Tortola


Hinn 6. októ­ber 2008 fékk Lindsor Holding Corporation, félag skráð á Tortóla-eyju, 171 milljón evra, um 26,5 millj­arða króna á gengi dags­ins í dag, lán­aða frá Kaup­þingi. Lindsor var í eigu Otris, félags sem stjórn­endur Kaup­þings stýrðu og virk­aði sem nokk­urs konar rusla­kista, afskrifta­sjóður utan efna­hags­reikn­ings Kaup­þings. Þangað var lélegum, og ónýtum, eignum hrúgað.

Lánið var veitt sama dag og Seðla­banki Íslands lán­aði Kaup­þingi 500 millj­ónir evra í neyð­ar­lán og þremur dögum áður en Kaupþing hrundi.

Þetta er örstutt brot úr umfjöllun Kjarnans um Lindsor-málið. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár