Spes: Stökk fram af sviðinu í hóp unnenda Händels

Það var varla hug­mynd Tom Morris, list­ræns stjórn­anda í Bristol Old Vic-leik­hús­inu, að gestir sin­fón­íu­tón­leika misstu vitið ef hann leyfði þeim að hegða sér eins og á popp­tón­leikum. Gjörn­ingur Morris gekk út á að bjóða tón­leika­gestum að rísa úr sætum og standa við sviðið, klappa og hrópa á meðan flutt var óratóría Händels, Messías.

Var þar í hópi aðdá­enda doktor einn í efna­fræði við Bristol-háskóla, David Glowacki að nafni. Sá var svo heill­aður af flutn­ingi hljóm­sveit­ar­innar að hann hóf að riða fram og aftur með báðar hendur á lofti og hrópa lofyrði. Vitni segja hann svo hafa reynt að stökkva fram af svið­inu í hóp áhorf­enda með það að mark­miði að láta hóp­inn bera sig.

Áhorf­end­urnir voru hins vegar orðnir þreyttir á trufl­unum Glowackis svo að þeir tóku málin í sínar hendur og báru hann út úr salnum. Tom Morris segir þetta vera í fyrsta sinn síðan á átj­ándu öld sem svipað atvik á sér stað. Svona fer ef form­leg­heit og prjál skipta ekki lengur máli á klass­ískum tón­leikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár