Spes: Typpið minnkaði í aðgerð og hjónabandið fór í mask

Kanadískur maður sem er lamaður fyrir neðan mitti hefur kært spít­ala í Montréal fyrir gáleysi í aðgerð sem hann gekkst undir fyrir tveimur árum og varð til þess að typpið hans minnk­aði. Nú getur hann ekki stundað kyn­líf, sem varð til þess að eig­in­kona hans fór frá honum. Huffington Post greinir frá þessu.

„Þetta hefur haft meiri áhrif á líf mitt en þegar ég missti mátt­inn í fót­unum,“ sagði mað­ur­inn við kanadíska fjöl­miðla. Hann vildi þó ekki koma fram undir nafni.

Maðurinn óheppni var að stunda kyn­líf með konu sinni fyrir þremur árum þegar hann slas­að­ist á typp­inu. Hann leit­aði þá aðstoðar á spít­al­anum, þar sem hjúkr­un­ar­kona leit á typpið en rann­sak­aði það ekki náið, þar sem áverk­inn var álit­inn smá­vægi­legur. Liðu svo vikur þar til mað­ur­inn fékk sér­fræð­ing til að athuga málið. Var nið­ur­staða hans sú að typpið hefði í raun orðið fyrir nokkrum skaða.

Í kærunni á hendur spít­al­anum segir að mað­ur­inn hafi næst geng­ist undir aðgerð sem hafi skilið eftir sig mikið ör og minnkað typpið um tommu í lengd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár