Spes: Var of fáklædd til að fela fíkniefni innanklæða

Á dög­unum var hin tví­tuga Tiffany Evans stöðvuð seint um nótt af lag­anna vörðum í Spring­fi­eld í Massachusetts í Banda­ríkj­unum fyrir að keyra yfir á rauðu ljósi á bláu Hondunni sinni. Þegar lög­reglu­menn­irnir nálg­uð­ust bíl­inn sáu þeir hvernig öku­mað­ur­inn reyndi að stinga ein­hverju inn á sig inn­an­klæða.

Evans starfar sem fata­fella og var á leið heim til sín eftir vinnu. Lög­reglu­menn­irnir sáu hvernig henni gekk hálf brösu­lega að stinga inn á sig því sem hún vildi ekki að lög­regla sæi, sökum efn­is­lít­ils kvöld­fatn­aðar, þannig að 47 pakkn­ingar af ætl­uðu heróíni duttu niður úr galla­stutt­bux­unum hennar þegar hún steig út úr bif­reið­inni sinni eftir skip­anir lög­reglu.

John Delaney, varð­stjóri hjá lög­regl­unni í Spring­fi­eld, sagði fjöl­miðlum að það hefði ekki verið nokkur mögu­leiki fyrir Evans að fela fíkni­efnin inn­an­klæða. Stutt­bux­urnar hennar hefðu verið allt of litlar og svo hefði sömu­leiðis verið ómögu­legt fyrir hana að fela fíkni­efnin í efn­is­lít­illi skyrtu sem hún klædd­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár