Hver hefur „the moral high ground“?

„Að lokum er eitt­hvað veru­lega bogið við alla umræðu varð­andi hugs­an­legar við­skipta­þving­anir Banda­ríkja­manna vegna hval­veiða Íslend­inga á sama tíma og fréttir ber­ast af því hvernig þeim er að mis­takast að aflífa fólk eftir dauða­dóma í eigin rétt­ar­kerfi. Hvor er hér með ,,the moral high ground" eins og þeir myndu orða það? Hvor hefur til­efni til að draga úr sam­skiptum við hinn? “ Þetta segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í færslu sem birt­ist á Facebook-síðu hans fyrr í dag og linkar inn á þessa frétt hér.

Í færsl­unni er Bjarni að fjalla um það að banda­rísk stjórn­völd hafi ekki boðið Íslend­ingum á haf­ráð­stefn­una Our Ocean, sem Banda­ríkin standa fyrir vegna hval­veiða.

Bjarni er segir að Banda­ríkin ættu að líta sér nær frekar en að for­dæma Íslend­inga fyrir hval­veiðar þeirra. „Það er til fyr­ir­myndar af utan­rík­is­ráðu­neyt­inu að beita sér fyrir umræðu um mál­efni hafs­ins, t.a.m. um sjálf­bærni veiða, en ekk­ert land stendur Íslandi framar í þeim mála­flokki.
Hafi hval­veiðar haft áhrif á aðkomu Íslands að ráð­stefn­unni væri ráð fyrir Banda­ríkja­menn að læra af íslenskri reynslu og ekki síður að líta sér nær. Af mörgu mætti hér nefna að nýlega hafa áform þeirra um neð­an­sjáv­ar­spreng­ingar í til­rauna­skyni verið harð­lega gagn­rýndar m.a. vegna alvar­legra áhrifa á hvali og önnur sjáv­ar­spen­dýr (sjá t.d.http://www.wildcalifornia.org/wp-content/uploads/2014/04/NWTT-DEIS-comments.pdf).
Að lokum er eitt­hvað veru­lega bogið við alla umræðu varð­andi hugs­an­legar við­skipta­þving­anir Banda­ríkja­manna vegna hval­veiða Íslend­inga á sama tíma og fréttir ber­ast af því hvernig þeim er að mis­takast að aflífa fólk eftir dauða­dóma í eigin rétt­ar­kerfi. Hvor er hér með ,,the moral high ground" eins og þeir myndu orða það? Hvor hefur til­efni til að draga úr sam­skiptum við hinn? http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/04/30/aftakan_mistokst_en_fanginn_lest/.“

 



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár