Baráttan um Internetið í Kína

Tvö risa­stór tækni­fyr­ir­tæki eru alls­ráð­andi á kín­verskum mark­aði. Þau eiga allt frá net­versl­unum, leit­ar­vélum og greiðslu­kerfum til sam­skipta­smiðla, afþrey­ing­ar­veitna og leikja­fyr­ir­tækja. Á meðan annað fyr­ir­tækið, Alibaba, und­ir­býr stærsta frumút­boð hluta­bréfa í sögu tækni­fyr­ir­tækja er hitt, Tencent, í hópi fimm stærstu skráðu tækni­fé­laga heims. Varin allri erlendri sam­keppni hafa félögin tvö orðið að sann­köll­uðum risum og fjár­fest í nær öllum tækninýj­ungum síð­ustu 15 ára. Í fjöl­menn­asta ríki heims fjölgar not­endum tölva og snjall­síma ört. Allt fellur Alibaba og Tencent í hag, á sama tíma og þau heyja ofsa­feng­inn bar­daga sín á milli um hylli almenn­ings.

Alibaba á markað


Í nóv­em­ber síð­ast­liðnum, þegar Íslend­ingar hófu að kaupa jóla­gjaf­irnar í tæka tíð, bár­ust á sjö­unda þús­und pakkar til lands­ins með ýmsum varn­ingi, sér­pönt­uðum af kín­versku net­versl­un­inni Ali­Ex­press.com. Lands­menn nýttu sér lægra vöru­verð á fatn­aði, skóm, raf­tækjum og öðru. Fjöldi send­inga frá Kína til Íslands marg­fald­að­ist milli ára.

Net­versl­unin er aðeins ein nokk­urra í eigu kín­verska tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Alibaba. Fyr­ir­tækið er annað tveggja stærstu tækni­fyr­ir­tækja lands­ins, rekur allar mögu­legar gerðir net­versl­ana þar sem það ræður yfir 70% mark­að­ar­ins, leit­ar­vélar, net­greiðslu­kerfi, sjón­varps- og tölvu­leikja­vef og býður upp á gagna­vistun í skýj­unum. Í stuttu máli er Alibaba kín­verska útgafan af Amazon, eBay og PayPal. Allt undir einum hatti.

Í síð­asta mán­uði óskaði Alibaba eftir skrán­ingu á banda­rískan hluta­bréfa­markað. Fjár­festar á Wall Street iðuðu í skinn­inu af spennu og helstu fjöl­miðlar, einkum þeir sem fylgj­ast náið með mark­aði tölva og tækni, greindu frá útboðs­gögnum og fyr­ir­ætl­unum félags­ins í smá­at­riðum. Það hefur lengi reynst banda­rískum félögum og fjár­festum erfitt að hasla sér völl á kín­verska mark­aðnum en Alibaba gefur aukin færi til þess.

Það fel­ast því tíð­indi í ákvörðun Jack Ma, stofn­anda og for­stjóra Alibaba, og félaga hans um að skrá Alibaba í kaup­höll. Fimmtán árum frá stofnun býr Alibaba til svo mikil verð­mæti að stærstu banda­rísku net­fyr­ir­tækin blikna flest í sam­an­burði. Umsvifin eru lygi­leg. Samkvæmt útboðs­gögnum veltu net­versl­anir félags­ins um 248 millj­örðum doll­ara í fyrra. Það er þrisvar sinnum hærri fjár­hæð en velta upp­boðs­síð­unnar eBay og ríf­lega tvö­föld velta Amazon.com. Um 84% af tekjum Alibaba fást af þess­ari starf­semi. Greiðslu­þjón­usta er einnig mik­il­vægur tekju­póstur og veltir um 519 doll­urum árlega. Það er yfir tvö­falt meira en hjá PayPal.

Fastlega er búist við að frumút­boð hluta­bréfa í Alibaba muni slá skrán­ing­ar­met tækni­fyr­ir­tækja, sem Facebook setti í maí 2012. Þá safn­aði banda­ríski sam­skipta­vef­ur­inn 16 millj­örðum doll­ara, sem er átt­unda stærsta hluta­fjár­út­boð sög­unnar. Gert er ráð fyrir að útboð Alibaba á 12% hlut verði um 20 millj­arða doll­ara virði. Það gefur mark­aðs­verð­mæti upp á um 165 millj­arða doll­ara, meira en verð­mæti Facebook, Amazon og eBay. Félagið verður skráð í kaup­höll síðar á árinu og hafa sér­fræð­ingar talið mark­aðs­verð­mætið geta orðið alls staðar á bil­inu 136 til 245 millj­arðar doll­ara.

Jack Ma heldur enn um tæp­lega 9% hlut í fyr­ir­tæk­inu sem hann stofn­aði. Hann er í dag meðal tíu rík­ustu Kín­verj­anna.

Hinn risinn


Á meðan Alibaba ræður lögum og lofum í net­versl­unum og net­greiðslu­miðlun er keppi­naut­ur­inn Tencent ráð­andi þegar kemur að sam­fé­lags­miðlum. Í komm­ún­íska alþýðu­lýð­veld­inu Kína er óleyfi­legt að nota Twitter og Facebook. Almenn­ingur þarf þó ekki að örvænta, því Tencent býður upp á sam­bæri­lega þjón­ustu. Það kemur ekki til af hreinni til­viljun, marg­sinnis hefur verið bent á tengsl æðstu stjórn­enda félags­ins við kín­versk stjórn­völd.

Ein helsta afurð Tencent er sam­skipta­for­ritið WeChat. Nýlega var það metið á um 64 millj­arða doll­ara, þre­falda þá upp­hæð sem Facebook greiddi fyrir sam­bæri­lega for­ritið WhatsApp. Notendur eru um 270 millj­ónir tals­ins og senda með því skila­boð, myndir og mynd­bönd auk þess að panta ýmsa þjón­ustu eins og leigu­bíla.

Tencent hefur fjár­fest í marg­vís­legum fyr­ir­tækjum, helst á mark­aði snjall­síma. Utan WeChat má nefna hlut þess í leikja­fyr­ir­tæk­inu Zynga og hinu alís­lenska Plain Vanilla. Unnið er að gerð kín­verskrar útgáfu QuizUp-spurn­inga­leiks­ins.

Tencent var stofnað sama ár og Alibaba, árið 1999, af Ma Huateng og fór á markað 2004. Hann er í dag rík­asti maður Kína. Verðmæti Tencent í kaup­höll­inni í Hong Kong er um 150 millj­arðar doll­ara. Það er því í útvöldum hópi stærstu tækni­fyr­ir­tækj­anna á mark­aði, ásamt Amazon, Google, eBay og Facebook.

Aðrir starfshættir


Eign­ar­halds­fé­lagið Tencent, rétt eins og Alibaba, hefur starfað mjög í anda þess umhverfis sem fyr­ir­tækin spruttu úr. Á sama tíma og utan­að­kom­andi sam­keppni er með minnsta móti keppa þau hvert við annað. Drif­kraft­ur­inn er til staðar enda eftir miklu að slægj­ast. Starfs­manna­fjöldi félag­anna er mik­ill, um 21 þús­und manns starfa hjá Alibaba og þar af rúm­lega 7.300 verk­fræð­ingar, for­rit­arar eða gagna­sér­fræð­ingar. Enn fleiri eru hjá Tencent, tæp­lega 27 þús­und.

Kín­verjarnir vilja gera „þetta“ sjálfir – og geta það í lok­uðu umhverf­inu. Almenn­ingur getur ekki horft á sjón­varps­efni á Netflix, tíst á Twitter eða pantað leigu­bíl með Uber. Þeir sækja sömu eða svip­aða þjón­ustu með öðrum for­ritum, flestum í eigu Tencent eða Alibaba. Þegar hug­myndir og for­rit ann­arra (oft í sam­ráði við þau fyr­ir­tæki) eru heim­færð til Kína er gott að hafa marga for­rit­ara. Nokkur þús­und ættu að duga.

Blæs köldu


Ef ein­hver hélt að fyr­ir­tækin tvö lifðu í sátt og sam­lyndi á kín­verska mark­að­inum, með athygli 618 millj­ónir net­not­enda til skipt­anna og fer fjölg­andi, þá hafði sá hinn sami rangt fyrir sér. Sam­keppnin hefur farið harðn­andi og bæði félög hafa hætt sér inn á mark­aði þar sem hitt var áður ráð­andi. Í því sam­hengi er talað um kaup­hlaup. Á síð­asta ári hafa fyr­ir­tækin fjár­fest í félögum sem keppa við þjón­ustu þar sem hitt fyr­ir­tækið er ráð­andi.

Ekki er útséð um sig­ur­veg­ara kín­verska inter­nets­ins og alls þess sem þar þrífst. Sér­fræð­ingar spá ein­hverjum dýr­ustu sam­keppn­is­að­gerðum sög­unnar. Á sama tíma og félögin fjár­festa um allan heim berj­ast þau hat­ramm­lega í Kína, í skjóli boði og banna kín­verskra stjórn­valda og reglu­verks sem mörgum þykir allt í senn fram­andi, breyti­legt og flókið. Keppi­nautar í hinum vest­ræna heimi búa ekki við sömu skil­yrði heima fyrir og ættu að víg­bú­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár