Bjarni: Þurfum jafnvel að fara að toga til baka

„Mér finnst við vera með mjög verð­mætt en um leið mjög brot­hætt tæki­færi í hönd­unum til að við­halda stöð­ug­leika. Við erum með mjög lága verð­bólgu, það er ágætis friður á vinnu­mark­aði, rík­is­fjár­mál eru í jöfn­uði og skulda­lækk­un­ar­ferlið hafið bæði hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum,“ segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um það ástand sem nú ríkir í íslensku hag­kerfi. „Það er dálítið skrýtin staða að vera í að hafa lengi talað fyrir því að örva hag­kerfið og ýta hlut­unum af stað, en upp­lifa það svo skyndi­lega að það séu uppi merki um að það sé best að hætta að ýta og fara jafn­vel að toga til baka og halda aftur af hlut­unum.“

Farið varlega í skattalækkanir


Spurður hvort það sé skyn­sam­legt að nið­ur­greiða hús­næð­is­skuldir með skattfé eða ráð­ast í skatta­lækk­anir á þenslu­tíma segir Bjarni að stjórn­völd verði að gæta sín á því að styðja áfram við mark­mið um stöð­ug­leika. „Skulda­að­gerð­irnar koma til fram­kvæmda á fjórum árum. Það er hluti af aðgerð­inni að dreifa áhrif­unum yfir lengra tíma­bil. Sér­eignar­sparn­að­ar­leiðin er svo mót­vægi við hana sem eykur sparnað.

Ég er þeirrar skoð­unar að það sé sjálf­stætt efna­hags­legt vanda­mál að íslensk heim­ili séu ekki þátt­tak­endur í hag­kerf­inu. Við erum með mjög hátt skuld­sett heim­ili í land­inu. Þetta eru mál sem stjórn­völd verða að láta til sín taka. Grein­ingar segja að það sé viss hætta á að þetta leiði til auk­innar einka­neyslu og vextir þyrftu þá að hækka. Og það skiptir máli hvernig við myndum tíma­setja skatta­lækk­un­ar­að­gerðir. Ég er ekki með á prjón­unum stórar skatta­lækk­un­ar­að­gerðir á næsta ári sem væru til þess fallnar að auka einka­neyslu. Við verðum að tíma­setja slíkar aðgerðir mjög vel. Við erum að horfa á kerf­is­breyt­ingar á næsta ári, til dæmis með því að afnema vöru­gjöld og breyta virð­is­auka­skatts­kerf­inu. Við þessar aðstæður þurfa stjórn­völd að gæta sín á því að styðja áfram við mark­mið um stöð­ug­leika.“

Áhyggjur af byggingu nýs spítala


Bjarni tekur undir að margt í því ástandi sem nú ríkir minni á byrjun síð­asta góð­ær­is­tíma­bils. Hann seg­ist ákveð­inn í því að draga lær­dóm af því sem þá gerð­ist. „Á því tíma­bili kom, ofan í skatta­lækk­anir og virkja­na­um­svif, sú breyt­ing að alþjóð­legir fjár­mála­mark­aðir voru að stækka og pen­ingar urðu smám saman því næst ókeypis. Það var ekki góður kokk­teill inn í það ástand sem var á Íslandi á þeim tíma.

En varð­andi fram­kvæmdir hins opin­bera finnst mér það ekki vera rétta nálg­unin við þessar að­stæður að byggja leigu­í­búðir fyrir eigin reikn­ing [eins og Sam­fylk­ingin hefur lofað í Reykja­vík]. Borgin ætti frekar að tryggja lóða­fram­boð fyrir áhuga­sama.

Það er full ástæða til að gæta að sér í fjár­fest­ingu hins opin­bera en það er hins vegar stað­reynd að hún hefur verið gríð­ar­lega lág und­an­farin ár. Við verðum að gæta okkur á því að hún verði ekki í kjall­ar­anum of lengi vegna þess að hún mun þá elta okkur uppi í fram­tíð­inni.“

En munu fram­kvæmdir við nýjan Lands­spít­ala hefj­ast á þessu kjör­tíma­bili? „Það verður að halda áfram að vinna að því máli vegna þess að þjóðin þarf að eiga öfl­ugan land­spít­ala. Ástæða þess að hann er ekki kom­inn lengra upp úr jörð­inni er að það hefur ekki verið til fjár­magn. Það er hægt að koma slíkri stór­fram­kvæmd fyrir á næstu árum en annað mun þá þurfa að víkja í ein­hverjum mæli. Þá munu menn gera minna í öðrum verk­efnum á borð við mann­virkja­gerð og stórar sam­göngu­úr­bætur. Það er ekki hægt að tíma­setja allt á sama tíma­bili ef við erum að upp­lifa mik­inn upp­gang og fjár­fest­ingu í einka­geir­anum á sama tíma, líkt og við erum að gera núna. Það þarf að meta það hvort spít­al­inn rúmist á þessu tíma­bili. Ég hef ákveðnar áhyggjur af því.“

Viðtalið við Bjarna Bene­dikts­son er hluti af ítar­legri umfjöllun Kjarnans um ofþenslu í íslensku efna­hags­lífi. Hægt er að lesa hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár