Eyðum okkur í gang

Þegar hag­fræði­pró­fess­or­inn Robert Aliber, sem er sér­fræð­ingur í efna­hags­bólum, kom til Íslands í maí 2008 spáði hann falli íslenska banka­kerf­is­ins. Hann ein­fald­lega taldi alla bygg­inga­kran­ana og komst að þeirri nið­ur­stöðu að kerfið væri dauð­dæmt. Aliber kom aftur til Íslands í októ­ber 2013. Þá taldi hann sjö bygg­inga­krana og komst að þeirri nið­ur­stöðu að það tákn­aði heil­brigt hag­kerfi. Síðan þá hefur bygg­inga­krön­unum fjölgað veru­lega. Og útlit er fyrir að þeim muni fjölga enn meira á allra næstu miss­erum.Það lítur margt mjög vel út í íslensku hag­kerfi um þessar mundir. Hag­vöxtur er að mæl­ast hár og spár gera ráð fyrir að hann muni ekki gera neitt annað en vaxa á allra næstu árum.

Verð­bólga er sömu­leiðis lág og atvinnu­leysi á und­an­haldi. Það er ýmis­legt sem skapar þetta ástand. Á síð­ustu árum var auk­inn útflutn­ingur á vörum og þjón­ustu, sér­stak­lega ferða­þjón­ustu og sjáv­ar­fangi, meg­in­or­sök hag­vaxtar. Frasinn um að túristar og mak­ríll hafi bjargað Íslandi frá enn stærri skelli er ekki fjarri sann­leik­anum. Þá hefur hjálpað til að ríkið hefur hvatt þegna sína til að eyða meiru, meðal ann­ars með því að leysa út sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn. Skulda­til­tektir af ýmsum toga hafa hjálpað til þar líka. Sterkt gengi krón­unnar hefur auk þess haldið verð­bólgu niðri.


Svikalogn í þensluástandi


Nú er hins vegar að skap­ast hér þenslu­á­stand. Íslend­ingar þekkja það ágæt­lega, enda ekk­ert svo langt síðan við gengum í gegnum nokkuð langt þenslu­tíma­bil sem hófst árið 2002 og lauk með for­dæma­lausu efna­hags­hruni haustið 2008. Á því tíma­bili jókst fjár­fest­ing gíf­ur­lega, aðal­lega vegna þess að ódýrir útlenskir pen­ingar flæddu inn í íslensku bank­ana, sem lán­uðu þá aftur út til alls kyns mis­gáfu­legra verk­efna.

Ríkið hefði átt að halda að sér höndum á slíkum tímum og reyna að kæla hag­kerfið. Í stað þess var það ofhitað með því að ráð­ast í að byggja Kára­hnjúka­virkjun, stærstu fram­kvæmd Íslands­sög­unnar. Afleið­ing­arnar þess ferða­lags þekkja allir. Hærri verð­bólga, ójafn­vægi í hag­kerf­inu, minnk­andi við­skipta­jöfn­uður, hærri vextir og sparn­aður hverfur.
Það er því ekki að ástæðu­lausu að þeim fjölgar dag frá degi, aðsendu grein­unum í dag­blöð­unum frá sér­fræð­ingum sem vara við því að illa geti farið. Það er svika­logn í loft­inu og nauð­syn­legt að halda mjög vel á spöð­unum ef þetta góð­ær­is­ferða­lag á ekki að enda með sam­bæri­legum skelli og það síð­asta.

Skipt um gír


Á síð­ustu örfáu mán­uðum virð­ist hag­kerfið hafa skipt all­hressi­lega um gír. Gríð­ar­leg aukn­ing í ásókn ferða­manna hingað til lands – þeir voru um 780 þús­und í fyrra, hefur leitt til þess að fjár­fest­ing í þeim geira er komin á fleygi­ferð. Í bygg­ingu eru nokkrir tugir hót­ela með vel á annað þús­und her­bergi. Bara í Reykja­vík munu verða byggð 1.200 hót­el­bergi á næstu þremur árum sem kosta um 30 millj­arða króna.

Í kynn­ingu sem Dagur B. Egg­erts­son, verð­andi borg­ar­stjóri, hélt fyrir borg­ar­ráð í byrjun mars kom fram að á árinu 2013 hefði verið hafin bygg­ing 614 íbúða í höf­uð­borg­inni. Spár gera ráð fyrir að fram­kvæmdir hefj­ist við 4.200 íbúðir til við­bótar á næstu þremur árum og að kostn­aður við þá upp­bygg­ingu fari vel yfir hund­rað millj­arða króna. Þarna er verið að bregð­ast við mik­illi upp­safn­aðri eft­ir­spurn eftir hús­næði, enda var lítið byggt af íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á árunum eftir hrun. Hús­næð­is­verð er sam­hliða á fleygi­ferð upp á við. Ný Hagsjá Lands­bank­ans spáir að hækkun þess verði níu pró­sent á þessu ári, 7,5 pró­sent á því næsta og sjö pró­sent árið 2016.

Á fyr­ir­tækja­svið­inu er Alvogen byrjað að byggja sér hátækni­setur og þeir tveir af stóru bönk­unum sem náðu ekki að byggja sér stöðu­tákns­höf­uð­stöðvar í síð­asta góð­æri hafa til­kynnt að slíkar séu á döf­inni.

Á sama tíma er verið að stækka Flugstöð Leifs Eiríks­sonar, grafa tvenn göng fyrir á þriðja tug millj­arða króna og byggja fang­elsi.

Fjórar kísilverksmiðjur að rísa


Samhliða öllu þessu hafa fjögur erlend fyr­ir­tæki hug á að byggja kís­il­verk­smiðjur á Íslandi. Tvær þeirra hafa þegar samið um orku og hinar tvær eru með vil­yrði um slíka. Íslenska ríkið hefur liðkað fyrir þessum fram­kvæmdum með því að gera íviln­ana­samn­inga við þrjú fyr­ir­tækj­anna og hið fjórða er von­gott um að fá slíkan mjög fljót­lega. Heild­ar­fjár­fest­ing verk­efn­anna er um 150 millj­arðar króna og fjöldi þeirra sem þurfa að vinna við bygg­ingu verk­smiðj­anna fjög­urra er svip­aður og vann við gerð Kára­hnjúka­virkj­unar.
Í tengslum við alla þessa stór­iðju þarf að búa til, og flytja, orku. Lands­virkjun, Orku­veita Reykja­víkur og Landsnet hafa því öll afráðið að ráð­ast í mjög kostn­að­ar­samar fram­kvæmdir til að anna þeirri eft­ir­spurn. Þær fara fram á sama tíma og allt ofan­greint.

Ofþensla fram undan


Ef allar þessar fram­kvæmdir fara í gang á næstu þremur árum verður ofþensla á Íslandi. Hennar er þegar farið að gæta í verð­bólgu­spám. Þegar tekið er til­lit til þess að við eigum líka eftir að afnema gjald­eyr­is­höft sem falsa raun­virði íslensku krón­unnar, og að flestir eru sam­mála um að hún muni lækka í verði við þá aðgerð, er ljóst að ástandið er mjög við­kvæmt og hið opin­bera ætti að halda að sér hönd­unum til að auka ekki á þegar mikla þenslu.

Samt sem áður ætlar Reykja­vík­ur­borg að hafa aðkomu að því að byggja 2.500-3.000 leigu­í­búðir á næstu árum sam­kvæmt kosn­inga­lof­orði Sam­fylk­ing­ar­innar. Og íslenska ríkið er undir miklum þrýst­ingi að ráð­ast í bygg­ingu nýs Land­spít­ala sem allra fyrst, en hann mun kosta á bil­inu 50-80 millj­arða króna.

Auk þess var farið í skulda­nið­ur­fell­ingar sem í felst að 80 millj­arðar króna renna til hluta heim­ila lands­ins á næstu árum og þegn­arnir geta eytt sér­eigna­sparn­aði upp að 70 millj­örðum króna í að greiða niður höf­uð­stól hús­næð­is­lána sinna. Þessar aðgerðir auka veð­rými heim­ila mjög, auka einka­neyslu og eru að mati flestra grein­ing­ar­að­ila mjög verð­bólgu­hvetj­andi.

Lestu frétta­skýr­ingu Kjarnans um þenslu­á­standið í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár