Mengun sem kostar okkur heilsu og mikla fjármuni

Brenni­steins­vetn­is­mengun er ekki til umræðu á hverjum degi. Samt telja margir sér­fræð­ingar að losun brenni­steins­vetnis út í and­rúms­loftið og nei­kvæð áhrif þess á loft­gæði sé eitt stærsta umhverf­is­vanda­mál sem höf­uð­borg­ar­svæðið glímir við. Á síð­ast­liðnum ára­tug hafa Hell­is­heiðar- og Nesja­valla­virkjun, virkj­anir Orku­veitu Reykja­víkur sem standa í útjaðri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sam­tals losað um 198 þús­und tonn af brenni­steins­vetni út í and­rúms­loftið. Hags­muna­að­ila deilir á um lang­tíma­áhrif af brenni­steins­vetn­is­mengun.

Sigurður Ingi Jóhanns­son umhverfis­ráð­herra sagði til að mynda á Alþingi í apríl að lítið væri vitað um áhrif brenni­steins­vetnis á heilsu­far. Ýmsir sér­fræð­ingar sem hafa rann­sakað mögu­leg áhrif meng­un­ar­innar telja miklar líkur til þess að hún sé sam­fé­lag­inu afar dýr, bæði vegna áhrifa á heilsu fólks og gróður og ekki síður vegna tær­ingar málma. Þessi kostn­aður sé ekki inni­fal­inn í því verði sem rukkað er fyrir ork­una sem verin fram­leiða. Því sé risa­vaxin til­raun í gangi sem gæti á end­anum verið sam­félag­inu afar dýr.


Heilsufarslegur og fjárhagslegur kostnaður


Þeir sem hafa gagn­rýnt los­un­ina og fram­göngu Orku­veit­unnar í mál­inu hafa bent á að hægt hafi verið að kaupa hreins­un­ar­búnað sem sannað hefur nota­gildi sitt og nær að tak­marka útblástur brenni­steins­vetnis nán­ast að fullu. Slíkur bún­aður var hins vegar ekki keyptur þegar virkj­anir Orku­veit­unnar voru reistar.
Gagn­rýnendur segja að þessum kostn­aði, sem Orku­veitan hefði átt að sitja uppi með, sé velt yfir á sam­fé­lagið. Hann sé veru­legur út frá heilsu­fars­legu sjón­ar­miði. Þessi skoðun kom meðal ann­ars fram í grein Jóns Örvars G. Jóns­sonar umhverfis­fræð­ings sem birt­ist í Frétta­blað­inu 23. maí síð­ast­lið­inn. Börn Jóns Örvars ganga í skóla í Lækj­ar­botni, sem fjallað er um sér­stak­lega í þess­ari úttekt.

Hún kom líka mjög skýrt fram í erindi sem María Maack, dokt­or­snemi í vist­hag­fræði, flutti á ráð­stefnu FUMÍ um brenni­steins­vetni 25. sept­em­ber í fyrra.
Yfir­skrift erind­is­ins var „Áætlaður úthrifs­kostn­aður brenni­steins“, en úthrif er sá kostn­aður sem ekki er rukkað fyrir í verði vöru eða þjón­ustu, en lendir á sam­fé­lag­inu í heild sinni, ann­að­hvort núlif­andi með­limum þess eða kom­andi kyn­slóðum.

Í erindi sínu rekur María mögu­leg heilsu­fars­leg, gróð­ur­fars­leg og fjár­hags­leg áhrif brenni­steins­vetnis. Sýnt hefur verið fram á að rýrnun loft­gæða vegna útblást­urs brenni­steins­vetnis geti valdið önd­un­ar­færa­kvillum á borð við astma og vís­bend­ingar eru sagðar um að það geti í litlum skömmtum haft áhrif á tauga­kerfi manna. Lang­tíma­á­hrif útblást­urs­ins hafa þó ekki verið rann­sókuð nægi­lega mikið og því liggur ekki fyrir hvort þau eru mjög skað­leg eða ekki.

Í erindi Maríu eru færð rök fyrir því að útblást­ur­inn geti líka valdið sam­fé­lag­inu tölu­verðum fjár­hags­legum skaða. Þannig ryðgi báru­járn hraðar, ýmis raf­tæki bili oftar, möstur end­ist skemur og svo fram­vegis. Þá telja hljóð­menn að brenni­steins­mengun orsaki mjög hraða tær­ingu á efnum á borð við kopar og silfur. Mbl.is fjall­aði ítar­lega um það mál fyrir um ári. María setti upp kostn­aðar- og ábata­grein­ingu þar sem ábat­inn var þau úthrif sem kom­ist væri hjá ef virkj­an­irnar hefðu sett upp hreins­un­ar­búnað sem kost­aði 2,2 millj­arða króna strax í upp­hafi og afskrifað hann á 50 árum. Hún komst að þeirri nið­ur­stöðu, miðað við gefnar for­sendur, að það myndi borga sig upp á innan við tíu árum að hafa sett upp bún­að­inn til að hreinsa brenni­steins­vetnið frá. Sé sú nið­ur­staða rétt er fjár­hags­legur sam­fé­lags­legur kostn­aður af því að hreins­un­ar­bún­aður var ekki settur upp nokkur hund­ruð millj­ónir króna á ári.

Þetta er brot út ítar­legri úttekt Kjarnans á mál­inu. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár