Efsta prósentið á tíu prósent hreinna eigna

Það eina pró­sent lands­manna sem var með hæstu heild­ar­tekj­urnar á árinu 2012 áttu sam­tals 229,5 millj­arða króna. Hópurinn skuld­aði 37,4 millj­arða króna og því var hrein eign hans 192,1 millj­arður króna. Alls var hrein eign lands­manna allra, eignir að frá­dregnum skuldum, 2.075,5 millj­arðar króna í lok árs 2012 og því átti efsta eina pró­sentið tæp­lega tíu pró­sent af hreinni eign lands­manna.
Þetta eina pró­sent á líka lang­mest af reiðufé. Alls á það 86,3 millj­arða króna í inn­lendum inn­stæðum, eða 19 pró­sent allra slíkra, og 5,6 millj­arða króna í upp­gefnum erlendum inni­stæðum, eða 64 pró­sent allra erlendra inn­stæðna sem Íslend­ingar skrá í skatt­fram­talin sín.


Í fyrsta sinn sem svona upplýsingar eru aðgengilegar


Þetta kemur fram í skatta­töl­fræði Rík­is­skatt­stjóra þar sem eignum heim­ila í land­inu er skipt niður eftir tekju­hópum. Upp­lýs­ing­arnar byggja á skatta­fram­tölum ein­stak­linga og sam­skatt­aðra (sam­býl­is­fólks eða hjóna) og miða við stöðu gagna strax að loknum fram­tals­skilum vegna árs­ins 2012. Að baki töl­unum eru um 246.600 manns. Þær voru nýverið birtar á heima­síðu Rík­is­skatt­stjóra.
Um er að ræða nýj­ustu tölur sem hægt er að nálg­ast sem byggja á skatt­fram­tölum. Í skjal­inum sem emb­ætti ríkis­skatt­stjóra birti fyrir skemmstu er í fyrsta sinn hægt að sjá hvað hvert pró­sent lands­manna á og skuldar. Áður var ein­ungis hægt að sjá þær nið­ur­stöður í fimm pró­senta hlut­falls­bilum. Því er þetta í fyrsta sinn sem hægt er að segja til um eign þess pró­sents lands­manna sem er með hæstu launin.

Þetta er brot úr skýr­ingu Kjarnans um málið. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár