Dómsuppsaga í Aurum-málinu á morgun

Dóms­upp­saga í Aurum-mál­inu svo­kall­aða mun fara fram á morgun, fimmtu­dag. Í mál­inu eru þeir Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrrum aðal­eig­andi Glitnis, Lárus Welding, fyrrum banka­stjóri Glitnis, Magnús Arnar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Glitni, og Bjarni Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóri Glitnis ákærðir fyrir umboðs­svik og hlut­deild í umboðs­svikum.

Málið snýst um sex millj­arða króna lán­veit­ingu til félags­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­magna kaup FS38, eign­ar­laust félag í eigu Pálma Har­alds­sonar, á 25,7 pró­sent hlut Fons hf., líka í eigu Pálma, í Aurum Holding Limited. Hluti láns­ins, einn millj­arður króna, var ráð­stafað inn á per­sónu­legan banka­reikn­ing Jóns Ásgeirs. Hann nýtti þann millj­arð síðan í að borga meðal ann­ars 705 millj­óna króna yfir­drátt­ar­heim­ild sína hjá Glitni. Sér­stakur sak­sókn­ari vill meina að Jón Ásgeir hafi þannig fengið hlut í ávinn­ingi af brot­inu og notið hagn­að­ar­ins.

Sér­stakur sak­sókn­ari fer fram á sex ára fang­elsi yfir Lárusi Welding í mál­inu of fjög­urra ára fang­elsi yfir þeim Jóni Ásgeiri, Magnúsi Arnari og Bjarna.

Dóms­upp­sagan fer fram klukkan tíu í sal 101 á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár