Spes: Leið út af undir stýri eftir að hafa haldið í sér andanum

Nítján ára gam­all banda­rískur karl­maður, Daniel J. Calhon, varð valdur að þriggja bíla árekstri í und­ir­göngum í Oregon-ríki á dög­unum. Calhon hélt í sér and­anum á leið sinni í gegnum göngin, með þeim afleið­ingum að hann leið út af og keyrði framan á jeppa sem kom akandi úr gagn­stæðri átt.

Báðir bíl­arnir skullu utan í veggi gang­anna áður en þriðji bíll­inn, pall­bíll, skall á þeim. Calhon og far­þegi hans voru fluttir á slysa­deild eftir árekst­ur­inn með minni­háttar meiðsli, ásamt öku­manni og far­þega jeppa­bif­reið­ar­innar. Aðrir slös­uð­ust ekki.

Haft er eftir lög­reglu­yf­ir­völdum í Oregon í banda­rískum fjöl­miðlum að sumir geri sér að leik að halda í sér and­anum á leið í gegnum und­ir­göng, eða vegna hjá­trúar. Göngin þar sem árekst­ur­inn varð eru 235 metra löng, sem þýðir að bif­reið á lög­legum hraða hefði verið tíu sek­úndur í gegnum göngin.

Hinn and­stutti Calhon var kærður fyrir að stofna lífi og limum veg­far­enda í hættu með athæf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár