Búum við í fjölheimi?

Fyrir um 100 árum bylti Albert Einstein heims­mynd okkar. Þá setti hann fram nýja kenn­ingu um þyngd­ar­kraft­inn sem hann kall­aði almennu afstæð­is­kenn­ing­una, kenn­ingu sem lýsti eðli rúms og tíma. Kenn­ingin útskýrði ekki aðeins hegðun þyngd­ar­krafts­ins, heldur líka hvernig alheim­ur­inn gæti þró­ast. Til­raunir og mæl­ingar stað­festu fljótt spár afstæðis­kenn­ing­ar­innar og fóru menn þá að velta fyrir sér hvað hún segði um alheim­inn.

Árið 1927 gerði Georges Lemaître, belgískur prestur og eðl­is­fræð­ingur, útreikn­inga sem sýndu að alheim­ur­inn gat ekki verið stöð­ugur, eins og við­tekna heims­myndin gerði ráð fyrir. Kenning Ein­steins sýndi að alheim­ur­inn, eða rúmið – geim­ur­inn sjálfur – væri ann­að­hvort að þenj­ast út eða drag­ast saman, þ.e.a.s. alheim­ur­inn hlyti að vera að stækka eða minnka. Lemaître setti fram þá til­gátu að alheim­ur­inn ætti sér upp­haf í ein­hvers konar „frum­atómi“.

Einstein leist illa á þessa hug­mynd Lemaître. Hann sagði að þótt útreikn­ing­arnir væru réttir væri eðl­is­fræðin and­styggi­leg. Einstein taldi enda, eins og flestir aðrir á þeim tíma, að alheim­ur­inn væri stöð­ugur og óbreyt­an­legur. Svo viss var hann í sinni sök að hann bætti fasta við jöfnur sínar til þess að þær lýstu örugg­lega stöð­ugum alheimi. Síðar lýsti Einstein fast­anum sem sínu mesta axar­skafti.

Tveimur árum eftir að Lemaître vakti athygli Ein­steins og ann­arra á hug­mynd sinni um alheim í útþenslu gerði Edwin Hubble eina mestu upp­götvun vís­inda­sög­unnar. Mælingar hans sýndu að vetr­ar­brautir voru að fjar­læg­ast hver aðra. Því fjar­læg­ari sem þær voru, þeim mun hraðar fjar­lægð­ust þær okkur. Alheim­ur­inn var svo sann­ar­lega að þenj­ast út!
Ef alheim­ur­inn var að þenj­ast út hlaut hann að hafa verið minni, þétt­ari og heit­ari í for­tíð­inni, eins og Lemaître hafði bent á. Alheim­ur­inn hlaut að hafa sprottið úr örsmáum punkti sem byrj­aði að þenj­ast út í því sem við köllum nú Mikla­hvell.

Endurómur Miklahvells


Samkvæmt Mikla­hvells­kenn­ing­unni átti alheim­ur­inn sér heitt upp­haf. Í árdaga var alheim­ur­inn upp­fullur af heitri geislun sem kóln­aði veru­lega með tím­anum sam­hliða útþensl­unni. Útreikn­ingar sýndu að hit­inn frá Mikla­hvelli ætti enn að vera mæl­an­legur og bær­ist til okkar úr öllum áttum sem daufur örbylgju­bjarmi – svo­kall­aður örbylgjukliður.
Árið 1964 fannst örbylgjuklið­ur­inn fyrir slysni og hlutu vís­inda­menn­irnir tveir, Arno Penzias og Robert Wilson, Nóbels­verð­laun fyrir. Upp­götv­unin stað­festi að alheim­ur­inn átti sér heitt upp­haf og renndi enn styrk­ari stoðum undir Mikla­hvells­kenn­ing­una.

Mælingar á örbylgjukliðnum sýndu að hann var ótrú­lega eins­leitur og sam­felldur, þ.e.a.s. nokkurn veg­inn eins, sama hvert við lítum, eins og mynd 1 sýnir. Hvers vegna?

Óðaþensla til bjargar


Árið 1980 birti banda­ríski eðl­is­fræð­ing­ur­inn Alan Guth (og sam­tíma­menn hans) útreikn­inga sem sýndu að sam­kvæmt jöfnum Ein­steins getur þyngd­ar­kraft­ur­inn ekki aðeins dregið hluti saman, heldur líka verkað eins og frá­hrindi­kraftur.

Guth setti fram bylt­ing­ar­kennda hug­mynd. Í frum­bernsku alheims­ins, aðeins 10-36 sek­úndum eftir upp­hafið, þand­ist alheim­ur­inn út 1026-falt á sek­úndu­broti. Þessi snögga útþensla hafði þau áhrif að allar orku- og efn­isó­jöfnur í alheim­inum slétt­ust út. Þannig gátu Guth og fleiri útskýrt hvers vegna alheim­ur­inn virð­ist eins­leitur í allar áttir.

En hvernig er hægt að stað­festa kenn­ingu um atburð sem stóð yfir í innan við sek­úndu­brot fyrir 13,8 millj­örðum ára?

Skammtaflökt


Í upp­hafi, á fyrstu sek­úndu­brot­unum þegar alheim­ur­inn var örsmár, réði skammta­fræðin ríkjum. Orka og agnir flöktu; agnir urðu til úr orku og hurfu jafn­harðan. Þetta skammtaflökt mynd­aði gárur í tóma­rúm­inu þannig að hita­stig varð mis­mikið milli mis­mun­andi staða í al­heim­inum. Útreikn­ingar sýndu að hita­stigs­mun­ur­inn var reyndar mjög lít­ill, aðeins hund­rað þús­und­asti hluti úr gráðu, en hefði til­tekið mynstur yfir allan him­inn­inn.

Í lok 20. aldar og í byrjun þess­arar mældu stjörnu­fræð­ingar hita­stig örbylgjukliðs­ins með mik­illi nákvæmni sem sýndi þennan mun (sjá mynd 2). Mælingar sýndu að örbylgjuklið­ur­inn er ekki full­kom­lega sam­felldur heldur gár­aður. Sem betur fer, því ef ekki væri fyrir þennan hita­stigs­mun milli svæða í alheim­inum hefðu stjörnur og vetr­ar­brautir (og þar af leið­andi við) aldrei orðið til!

Samkvæmt óða­þenslu­kenn­ing­unni þand­ist alheim­ur­inn svo hratt út (hraðar en ljósið) á fyrstu sek­úndu­brotum Mikla­hvells að skammtaflöktið mynd­aði þyngd­ar­bylgjur sem gengu um tíma­rúmið eins og gárur á vatni. Kenn­ingin spáir fyrir um að þyngd­ar­bylgj­urnar hefðu skilið eftir sig ákveðin mynstur í örbylgjukliðnum sem væru fingraför óða­þenslu. Ef slík mynstur er að finna í örbylgjukliðnum myndi það renna stoðum undir óða­þenslu­kenn­ing­una.


Mælingar frá Suðurskautslandinu


Við fyrstu sýn kann Suð­ur­skauts­landið að virð­ast sér­kenni­legur staður fyrir stjörnu­at­hugunir. Suð­ur­skautið er kald­asti og þurr­asti staður ver­aldar og er því ein­stak­lega heppi­legt fyrir rann­sóknir á örbylgju­geislun sem vatns­gufa í loft­hjúpnum gleypir ann­ars.

Í þrjú ár starði lít­ill sjón­auki, BICEP2, á him­in­inn yfir Suð­ur­pólnum í leit að fingraförum óða­þensl­unnar í örbylgjukliðnum. Í mars síð­ast­liðnum til­kynntu stjörnu­fræð­ingar við verk­efnið að þeir hefðu nú fundið þessi fingraför, sem stað­festu þar með óða­þenslu­kenn­ing­una!

Þetta er stór­kost­leg upp­götvun, ein mesta og mikil­væg­asta upp­gövun vís­inda­sög­unnar. Fyrir hana verða eflaust veitt Nóbels­verð­laun. Verði hún stað­fest.
Vís­inda­menn eru nefni­lega venju­lega fullir efa­semda þegar um bylt­ing­ar­kenndar upp­götv­anir er að ræða. Þeir vilja fá að skoða gögnin og krefj­ast þess að frek­ari mæl­ingar verði gerðar.


Hvað var mælt?


Und­an­farnar vikur hafa nið­ur­stöð­urnar því verið skegg­ræddar og ekki eru allir sann­færðir. Enginn efast um að BICEP2 hafi mælt eitt­hvað en menn greinir á um hvað.
Líklega mun taka nokkur ár að sann­reyna nið­ur­stöð­urnar. Nokkrir aðrir sjón­aukar, þar á meðal Planck-geim­sjón­auki Geim­stofn­unar Evrópu (ESA), geta mælt þessi fingraför óða­þensl­unnar í örbylgjukliðnum og má búast við nið­ur­stöðum frá honum síðar á þessu ári.

Hvað þýða niðurstöðurnar?


Hvers vegna þykja þessar nið­ur­stöður svona merki­legar? Í fyrsta lagi renna mæl­ing­arnar stoðum undir óða­þenslu­kenn­ing­una. Við vitum ekki aðeins að alheim­ur­inn er að þenj­ast út, heldur höfum við nú fengið upp­lýs­ingar um hvað það var sem hratt útþensl­unni af stað og gerði efni kleift að kast­ast í kekki og mynda vetr­ar­brautir, stjörnur og að lokum okkur.
Í öðru lagi benda mæl­ing­arnar til að þyngdar­kraft­ur­inn sé skammt­aður. Menn hafa lengi reynt að sam­ræma skammta­kenn­ing­una og afstæð­is­kenn­ing­una í eina kenn­ingu og upp­götv­unin bendir til að þær til­raunir séu ekki með öllu til­gangs­lausar.

Þriðja atriðið er þó kannski einna merki­leg­ast. Eitt af því sem óða­þenslu­kenn­ingin spáir fyrir um er að óða­þenslu­sviðið sé svo öfl­ugt að það end­ur­taki sig í sífellu. Þegar einni óða­þenslu lýkur hefst önnur ann­ars staðar sem býr til annan Mikla­hvell og annan alheim. Þetta ferli end­ur­tekur sig í sífellu. Það þýðir að alheim­ur­inn okkar er aðeins einn af ótal mörgum alheimum sem mynda einn gríðar­mik­inn fjöl­heim!

Grein Sævars Helga birt­ist fyrst í nýjasta Kjarn­anum. Lestu hann hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár