Uppgjör á kosningaspá Kjarnans eftir kosningar

Nið­ur­stöður borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna sem haldnar voru síð­ast­lið­inn laug­ar­dag komu mörgum í opna skjöldu, en nið­ur­staða þeirra var tölu­vert frá því sem skoð­ana­kann­anir höfðu spáð. Þeim flokkum sem stýra rík­is­stjórn lands­ins gekk mun betur en spár höfðu gert ráð fyrir en Bjartri fram­tíð og Pírötum mun verr. Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar, dokt­ors í stærð­fræði, var búin að nema þessa breyt­ingu á fylgi allra flokka nema Sjálf­stæð­is­flokks. Hann hafði dalað í síð­ustu spám okkar. Frávik þeirra skoð­ana­kann­anna sem kosn­inga­spá Kjarnans byggði á var ívið meira frá kosn­inga­úr­slit­unum en í kosn­ing­unum 2010, 2006 og 2002.

Á heima­síðu sinni, kosn­inga­spa.is, segir Baldur að „Eitt helsta mark­mið kosn­inga­spár­innar er að setja upp­lýs­ingar í sam­hengi. Taka saman fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­anir og gefa þeim áreið­an­legri meira vægi í spá um úrslit kosn­inga. Þegar frá­vik kann­ana frá úrslitnum eru borið saman við það vægi sem kann­an­irnar fengu í loka spá fyrir kosn­ing­arnar sést að þetta mark­mið tókst. Könnunin sem fékk mest vægi spánni reynd­ist vera með minnst frá­vik frá úrslit­unum. Könnunin sem fékk næst mest vægi reynd­ist með næst minnst frá­vik, og svo koll af kolli. For­spár­gildi vægis í kosn­inga­spá í fyrstu keyrslu er því ásætt­an­legt. Nú þegar úrslit liggja fyrir hefst vinna við aðra ítrun á reikni­lík­an­inu sem kosn­inga­spáin byggir á."

 

Þróun á fylgi framboðanna


Kosn­inga­spá keyrð frá 26. febr­úar til 30. maí 2014. Síðustu tölur eru nið­ur­stöður kosn­inga.

[visualizer id="4616"]

Ljóst er að allar kann­anir van­mátu fylgi Fram­sókn­ar­flokks og flug­vall­ar­vina og Sjálf­stæð­is­flokks. Sömu­leiðis ofmátu allar kann­anir fylgi Bjartrar fram­tíðar og Pírata. Kosn­ings­spáin mældi vel þá fylg­is­aukn­ingu sem bæði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin fengu í kosn­inga­bar­átt­unni og það skarpa fall sem varð í stuðn­ingi við Bjarta fram­tíð og Pírata á loka­metr­unum. Fylgi við báða flokka var hins vegar ofmetið í könn­unum. Þá reynd­ist raun­fylgi Sjálf­stæð­is­flokks vera tölu­vert meira en kann­anir höfðu gert ráð fyrir.

Fjöldi fulltrúa í borgarstjórn


[visualizer id="4611"]

Meiri­hluti Sam­fylk­ingar og Bjartrar fram­tíðar, sem tók við kefl­inu af Besta flokknum, hélt ekki velli. Flokk­arnir hafa nú sjö full­trúa og af þeim hefur Sam­fylk­ing fimm. Mestu tíð­indin varð­andi fjölda full­trúa eru þau að Framsókn og flug­vall­ar­vinir náðu inn tveimur full­trúum, eða jafn mörgum og Björt fram­tíð sem hafði aldrei mælst með færri en þrjá í könn­unum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar manni frá síð­ustu kosn­ingum og Píratar munu eiga borg­ar­full­trúa í fyrsta sinn. Meiri­hluta­við­ræður eru hafnar milli Sam­fylk­ingar, Bjartrar fram­tíðar, Vinstri grænna og Pírata um að mynda níu manna meiri­hluta.

 

Fylgi stjórnaðist af kjörsókn


Á föstu­dag lét Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, hafa eftir sér í fréttum RÚV að kjör­sókn gæti haft áhrif á dreif­ingu fylg­is­ins í Reykja­vík. Hann hafði rétt fyrir sér. Kjörsókn í borg­ar­stjórn­ar­kos­ing­unum 2010 var aðeins 73,4 pró­sent, sú minnsta í borg­inni frá upp­hafi. Kjörsókn á lands­vísu árið 2010 var jafn­framt sú minnsta allra tíma í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum á Íslandi. Kjörsókn var enn verri á laug­ar­dag, eða 62,7 pró­sent. Það er versta kjör­sókn í Reykja­vík síðan 1928.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár