Biggi í Maus: Ógeðslega góð æfing í æðruleysi

Kvik­myndin Von­ar­stræti í leik­stjórn Baldvin Z. hefur ræki­lega slegið í gegn hér á landi. Gagn­rýnendur hafa keppst við að ausa mynd­ina lofi frá því að hún var frum­sýnd á dög­unum og bíó­þyrstir hafa flykkst í þús­unda­tali í kvik­mynda­hús til að berja mynd­ina augum. Heið­ur­inn að hand­rit­inu eiga þeir Baldvin Z. og Birgir Örn Stein­ars­son, betur þekktur sem Biggi í Maus.

Baldvin á að baki far­sælan feril sem leik­stjóri og hand­rits­höf­undur, en hand­ritið að Von­ar­stræti er fyrsta kvik­mynda­hand­ritið sem Birgir Örn skrifar.

Dreymdi um svona viðtökur sem krakki

Eins og áður segir hafa við­brögð gagn­rýnenda við Von­ar­stræti verið ævin­týri lík­ust. Á for­sýn­ingu mynd­ar­innar ætl­uðu til að mynda fagn­að­ar­lát­unum aldrei að linna, þegar mynd­inni lauk.

"Þetta er ógeðs­lega góð æfing í æðru­leysi. Auðvitað er maður geð­veikt glaður og þakk­látur, þó það sé klisja að segja það, en þetta opnar svo margar dyr fyrir manni. Þetta er fyrsta hand­ritið sem ég kem að og nú gæti svo farið að ég geti lifað af því sem ég elska að gera. Maður dreymir um svona við­brögð þegar maður er krakki. Þegar ég var ungur var ég rosa­lega dug­legur að semja lag eða plötu, sann­færður um að hún væri svo ógeðs­lega fokk­ing góð, að ég var eig­in­lega búinn að taka við Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum í hug­anum, áður en platan kom út. Maður var kannski svo­lítið hroka­fullur, en ég hætti því fyrir nokkrum árum. Þegar þessi hugsun skaut aftur upp koll­inum í hausnum á mér við gerð mynd­ar­innar, ýtti ég henni jafn­óðum út, því ég vissi hvað hún getur verið skemm­andi. Þú verður fyrst og fremst að ein­beita þér að því að sinna lista­verk­inu, en ekki rúnka þínu eigin egói."

Þetta er örstutt brot úr ítar­lega og ein­lægu við­tali Kjarnans við Bigga í Maus um vel­gengni Von­ar­strætis, for­tíð­ina og fram­tíð­ina. Lestu það allt í nýj­ustu útgáfu Kjarnans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár