Spes: Drekkanleg sólarvörn leysir af kámugar lúkur

Dagar kámugra handa, eftir að hafa makað sól­ar­vörn á lík­amann eða aðra við­stadda, eða klístraðra sand­korna eru liðnir, því nú gefst sól­baðs­dýrk­endum kostur á að kaupa sér drekk­an­lega sól­ar­vörn.

Banda­ríska fyr­ir­tækið Osmosis Skincare stað­hæfir að varan veiti vörn gegn skað­legum geislum sól­ar­innar upp að styrk­leika 30 og mælir með að hennar sé neytt á fjög­urra klukku­tíma fresti í sól­baði, tveggja milli­lítra í senn ásamt vatni til að tryggja fulla virkni.

Á vef­síðu snyrti­vöru­fyr­ir­tæk­is­ins er að finna fjöl­margar til­vitn­anir í ánægða við­skipta­vini þar sem þeir dásama vör­una en húð­sjúk­dóma­fræð­ingar hafa enn ekki tjáð sig um ágæti hennar.

Hundrað milli­lítra flaska kostar sem sam­svarar 3.400 íslenskum krónum, en töfra­seyðið er hægt að kaupa með tvenns konar virkni. Annars vegar virkni sem kemur í veg fyrir sól­brúnku, og hins vegar virkni sem stuðlar að úti­teknu útliti. Þannig geta neyt­endur fengið sér sopa, orðið brúnir og varist geislum sól­ar­innar á ein­faldan máta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár