Atvinnumaðurinn sem varð trillukarl

Dal­vík­ing­ur­inn Heiðar Helguson, einn dáð­asti knatt­spyrnu­maður þjóð­ar­innar, er orð­inn trillu­karl. Eftir að far­sælum atvinnu­manna­ferli hans í Englandi lauk, flutti hann ásamt fjöl­skyldu sinni aftur til Íslands, og keypti sér kvóta og smá­bát sem hann gerir nú út frá Hafn­ar­firði. Heiðar er fámáll maður, og hefur helst kosið að tjá sig á knatt­spyrnu­vell­inum. Hann tjáir sig nú í fyrsta skipti um lífið eftir atvinnu­mennsk­una í fót­bolta, í ein­lægu og ítar­legu við­tali við Kjarnann.

Tók sér tíma til að ákveða hvað hann vildi gera

Eftir að Heiðar flutti aftur til Íslands ásamt fjöl­skyldu sinni, eig­in­kon­unni Eik Gísla­dóttur og þremur sonum, tók hann sér nokkra mán­uði til að íhuga hvað hann ætti nú að taka sér fyrir hendur. Flestir knatt­spyrnu­menn sem snúa aftur úr atvinnu­mennsku kjósa að vera áfram viðr­inir fót­bolt­ann, en Heiðar ákvað að róa á gam­al­kunn mið. Úr varð að hann ákvað að hella sér út í útgerð. "Ég keypti mér lít­inn bát á Ólafsvík og sigldi honum til Hafn­ar­fjarðar í snar­vit­lausu veðri. Fjöl­skyldan mín á Dalvík hefur meira og minna unnið við sjáv­ar­út­veg­inn síð­ustu hund­rað ár, þannig að þessi ákvörðun lá bara vel við," segir Heiðar.

Sem ungur maður fór Heiðar nokkra túra með tog­ar­anum Blika EA, og varð mjög sjó­veikur í hvert skipti. "Ég ældi úr mér lungun, þannig að þegar ég ákvað að fara aftur í sjó­mennsk­una kross­lagði ég bara fing­urna og von­aði að sjó­veikin væri farin fyrir fullt og allt. Það virð­ist hafa virkað, því ég hef ekki orðið sjó­veikur enn."

Rómantíkin við sjómennskuna heillaði

Knatt­spyrnu­hetjan fyrr­ver­andi, sem ákvað að ger­ast trillu­karl, er mjög sátt við ákvörð­un­ina. "Mig lang­aði mikið að gera eitt­hvað þar sem ég gæti ráðið mér sjálfur. Ég er ekki með neina ein­ustu menntun og það tak­mark­aði svo sem mögu­leik­ana mína líka," segir Heiðar og hlær. "Svo hef ég líka gaman af lík­am­legri vinnu og vil stjórna mér sjálfur, hvenær ég vinn og hvenær ekki."

Fyrir mann sem hefur haft af því atvinnu að keppa í hóp­í­þrótt frá unga aldri, hljóta að vera mikil við­brigði að vera nú orð­inn ein­yrki, einn út á ball­ar­hafi að róa. "Auðvitað er þetta mikil breyt­ing frá því að mæta í vinn­una með þrjá­tíu gaurum og spila fót­bolta. Samt er ekk­ert dásam­legra en að vera einn út á sjó í góðu veðri. Það getur vit­an­lega verið ein­manna­legt að standa í þessu einn, þannig að ég er dug­legur að draga kon­una mína, strák­ana mína eða vini og vanda­menn með mér í veiði­t­úra. Það er engin skortur á sjálf­boða­liðum í kringum mig," segir Heiðar.

Þetta er örstutt brot úr ítar­legu við­tali við Heiðar Helguson. Lestu það í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár