Dramatískasta tímabilið á enda

Um helg­ina lauk 22. leik­tíð ensku úrvals­deild­ar­innar, vin­sæl­ustu knatt­spyrnu­deildar í heimi. Mið­aust­ur­landa­hrað­lestin Manchester City tryggði sér á end­anum tit­il­inn eftir æsispenn­andi loka­sprett sem ein­kennd­ist af gríð­ar­legri drama­tík. Hún náði lík­lega hámarki þegar Steven Gerrard, fyr­ir­liða Liverpool og lík­lega besta leik­manni í sögu deild­ar­innar til að vinna hana aldrei, skrik­aði fótur í leik gegn Chelsea sem færði varn­ar­vél Mourinho mark á silf­ur­fati og Manchester City bíl­stjóra­sætið í tit­il­bar­átt­unni. Það sæti lét liðið ekki af hendi.
Í aðdrag­anda þeirrar leik­tíð­ar­innar í ensku úrvals­deild­inni var því spáð af Kjarn­anum að þetta yrði eitt mest spenn­andi tíma­bil síðan úrvals­deildin hófst. Ástæðan var það rót sem var á fram­kvæmda­stjóra­stöðum topp­lið­anna. Af sjö efstu lið­unum var ein­ungis eitt með mann í brúnni sem hafði verið þar lengur en eitt tíma­bil, Arsenal. Mest mun­aði auð­vitað um brott­hvarf Sir Alex Ferguson frá Manchester United, en hann kvaddi með meist­aratitli þrátt fyrir að liðið sem hann var með í hönd­unum hafi verið eitt slakasta United-lið í manna minnum.

Þessar vær­ingar áttu heldur betur eftir að móta tíma­bilið, sem verður að telj­ast eitt það skemmti­leg­asta og mest spenn­andi sem leikið hefur verið frá því að úrvals­deildin var sett á lagg­irnar árið 1992.


Meiri dramatík en áður


Þegar 19 umferðir höfðu verið leiknar í des­em­ber síð­ast­liðnum, og deildin hálfnuð, voru Sund­er­land og West Ham í tveimur neðstu sæt­unum. Fulham og Crystal Palace voru með jafn­mörg stig og nán­ast sömu marka­tölu í sæt­unum þar fyrir ofan. Af þessum fjórum liðum féll ein­ungis eitt, Fulham. Sund­er­land varð annað liðið frá upp­hafi úrvals­deild­ar­innar til að vera á botn­inum en bjarga sér samt frá falli. Lengst af voru um tíu lið í fall­bar­átt­unni.

Á sama tíma var Arsenal í efsta sæti og Everton í fjórða sæti. Liverpool sat þá í fimmta sæt­inu og utan meist­ara­deild­ar­innar þegar tíma­bilið var hálfnað. Hin fræga aft­ur­för Manchester United var í góðum gír á þessum tíma og liðið sat í sjötta sæti.

Eftir síð­ustu helgi blasti allt önnur staða við. Cardiff og Norwich féllu með Fulham, Manchester City varð meist­ari eftir ótrú­lega bar­áttu við Liverpool, Arsenal lenti í fjórða sæti og Everton í því fimmta með 72 stig. Það hefur ein­ungis gerst þrisvar í sögu úrvals­deild­ar­innar að slíkur stiga­fjöldi dugi ekki til að ná fjórða sæt­inu. Síðast þegar Everton náði meist­ara­deildar­sæti árið 2005 var liðið með 61 stig, ell­efu stigum minna en á þess­ari leik­tíð. Árið áður fékk Liverpool 60 stig og náði meist­ara­deild­ar­sæti. Árið 1997 vann Manchester United raunar tit­il­inn með 75 stigum, þremur meira en Everton náði nú.


Sóknarbolti og miklu fleiri mörk


Fyrir þetta tíma­bil höfðu ein­ungis þrjú lið náð að skora yfir 90 mörk á einu tíma­bili. Og ein­ungis eitt þeirra náði að skora yfir 100 mörk. Það var Chelsea-liðið undir stjórn Carlo Ancelotti árið 2010 sem skor­aði 103 mörk. Í ár náðu tvö efstu liðin, Manchester City og Liverpool, bæði að skora yfir 100 mörk. Til að setja breyt­ing­una á Liverpool í sam­hengi hafði liðið mest skorað 77 mörk á tíma­bili áður síðan úrvals­deildin varð til. Þetta var því mikið marka­tíma­bil, enda sókn­ar­leikur í fyr­ir­rúmi hjá öllum lið­unum í topp fimm utan Chelsea.
Luiz Suarez náði að verða ein­ungis sjö­undi leik­mað­ur­inn frá upp­hafi til að skora yfir 30 mörk. Hann jafn­aði met Alan Shearer (1995/1996) og Cristiano Ronaldo (2007/2008) með því að skora 31 mark í 38 leikja deild. Suarez gerði reyndar betur en þeir báðir með því að skora mörkin sín í ein­ungis 33 leikjum, enda hóf hann tíma­bilið í löngu banni fyrir að bíta and­stæð­ing. Það þarf að spila ansi magnað tíma­bil til að vera val­inn betri en fót­bolta­aflið Yaya Toure. En Suarez tókst það.

Mörg lið komu mjög á óvart


Það er óhætt að segja að þetta hafi verið tíma­bil Merseyside-lið­anna frá Liverpool þótt bæði hafi kannski lokið keppni vit­andi að þau voru hárs­breidd frá því að gera enn betur. Liverpool var auð­vitað á kafi í tit­il­bar­áttu fram á síð­asta dag og spil­aði leiftr­andi sókn­ar­bolta sem tætti á stundum í sig sum bestu lið deild­ar­innar með þeim hætti að leik­irnir voru nán­ast búnir í fyrri hálf­leik. Nægir þar að nefna 5-1 sigur á Arsenal í febr­úar þar sem Liverpool skor­aði fjögur á fyrstu 20 mín­út­unum. Liðinu tókst líka að vinna 12 af síð­ustu 14 leikjum sínum, sem verður að telj­ast rosa­legur árangur.

Margir spáðu því að Everton myndi hrynja eins og spila­borg eftir að David Moyes yfir­gaf félagið fyrir Manchester United eftir ell­efu ára starf. Annað kom heldur betur á dag­inn. Liðið náði fleiri stigum en það hefur nokkru sinni áður náð í úrvals­deild­inni og gerði það með því að spila frá­bæran sókn­ar­bolta undir stjórn Roberto Martinez. Há­punktur tíma­bils­ins var ugg­laust sá að vinna Manchester United, og David Moyes, bæði heima og að heiman. Liðið hafði þá ekki unnið á Old Trafford frá árinu 1992.

En ýmsir komu líka á óvart á hinum enda deild­ar­innar. Sund­er­land tók þá góðu ákvörðun að reka hinn væg­ast sagt van­stillta Paolo Di Canio eftir fimm leiki, enda liðið ein­ungis með eitt stig á þeim tíma­punkti. Gus Poyet tók við, en hans beið það verk­efni að slípa til hóp sem sam­an­stóð af 14 nýjum leik­mönnum og afgangi sem var í sjokki eftir Di Canio tím­ann. Honum tókst að koma lið­inu í úrslit deildar­bik­ars­ins og bjarga því síðan frá falli með ótrú­legum enda­spretti þar sem Sund­er­land vann bæði Chelsea og Manchester United á úti­velli og náði í 10 stig af 12 mögu­legum.

Hinn kjall­ara­stjór­inn sem er vert að minn­ast á er Tony Pulis. Eftir að hafa verið rek­inn frá Stoke fyrir að spila leið­in­legan fót­bolta, með mikla áherslu á löng inn­köst, mætti mað­ur­inn með bens­ín­stöðv­arder­húf­una í brúna hjá Crystal Palace og vann krafta­verk með lið sem ansi margir sér­fræð­ingar voru vissir um að myndi falla beint aftur. Pulis náði að skila Palace í ell­efta sætið með 45 stig og vann meðal ann­ars fimm leiki í röð undir lok tíma­bils­ins.


Vonbrigði ársins


Þótt stuðn­ings­menn Arsenal séu eflaust fúlir með enn eitt árið í fjórða sæti, og nágrannar þeirra í Totten­ham yfir því hvað liðið þeirra var bæði slakt og leið­in­legt þorra tíma­bils­ins, þá er ein­ungis einn hand­hafi von­brigða­tit­ils­ins: Manchester United og David Moyes. „Hinn útvaldi“ var greindur ítar­lega í Kjarn­anum fyrr í vetur og tveimur mán­uðum síðar var búið að reka hann. Manchester United sló enda nán­ast öll óæski­leg met sem hægt var að slá. Fyrir utan að hafa ekki einu sinni náð Evr­ópu­deild­ar­sæti spil­aði liðið ein­fald­lega hræði­lega leið­in­legan fót­bolta þorra tíma­bils­ins. Það voru við­eig­andi enda­lok á þess­ari hel­för að Moyes hafi verið rek­inn eftir að gamla liðið hans Everton sund­ur­spil­aði slakt United lið í apríl.
Moyes og United hefðu líka átt verstu kaup árs­ins í Marouane Fellaini ef Totten­ham hefði ekki eytt 30 millj­ónum punda í Erik Lamela.

Hin von­brigðin eru stjóra­skiptin hjá Cardiff, Fulham (tvisvar), Norwich og West Bromwich Albion. Þau ákváðu öll að ráða stjóra til að redda sér frá falli sem höfðu enga reynslu af því að stýra liði í enskri deild­ar­keppni. Það reynd­ist ákaf­lega dýr­keyptur afleikur hjá öllum nema West Brom, sem þó náði bara rétt að hanga í deild­inni. Á sama tíma réðu Crystal Palace og Sund­er­land bæði stjóra með reynslu af enskum fót­bolta og héldu sér uppi með stæl. Grasið er ekki alltaf grænna hinum megin.

Greinin birt­ist fyrst í síð­asta Kjarn­anum. Lestu hann hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár