Valdir vegna þekkingar en fá vel borgað fyrir

Í síð­asta Kjarn­anum var sagt frá því að ýmsir aðilar hefðu fengið arð­bær verk­efni tengd skulda­nið­ur­fell­ingu rík­is­stjórn­ar­innar án útboðs. Það er þó ekki ein­ungis rík­is­stjórnin sem hefur valið aðila til að sinna verk­efnum fyrir sig án útboðs á und­an­förnum miss­erum. Eigna­safn Seðla­banka Íslands, dótt­ur­fé­lag Seðla­bank­ans sem heldur utan um eignir sem hann eign­að­ist eftir hrunið, til­kynnti í des­em­ber síð­ast­liðnum að það ætl­aði sér að hefja sölu á verð­tryggðum skulda­bréfum fyrir rúm­lega 100 millj­arða króna. Selja á skulda­bréfin í áföngum á næstu fimm árum.

Um er að ræða sér­tryggð skulda­bréf sem upp­haf­lega voru gefin út af Kaup­þingi en síðar yfir­tekin af Arion banka. Þau eru verð­tryggð með föstum vöxtum. Arion banki ætl­aði sér upp­haf­lega sjálfur að skrá bréfin á markað en af ein­hverjum ástæðum tókst það ekki. Þei mvar því skilað til ESÍ sem þurfti að „pakka pakk­anum“.
Það verður gert með því að stofna félög eða fag­fjár­fest­inga­sjóði og leggja þeim til eign með umræddum bréfum. Þau munu síðan gefa út bréf til ESÍ sem verða skráð í Kaup­höll­inni. Þau bréf verða síðan seld á næstu fimm árum og gert er ráð fyrir að fyrsta salan muni eiga sér stað fyrir næstu mán­að­ar­mót.

Summa ráðin


ESÍ réð félag sem heitir Summa Rekstr­ar­fé­lag til þess að ann­ast stýr­ingu eigna félag­anna sem verða stofnuð og við „önnur tengd verk­efni“. Fyrir það mun Summa þiggja þóknun sem ekki liggur fyrir hversu há verður. Það mun fara eftir hvaða verð fæst fyrir umrædd bréf en ljóst að hún verður umtals­verð, enda áætlað virði þeirra yfir 100 millj­arðar króna.
Verk­efnið var ekki boðið út og Summa í raun hand­valin til þess að sinna því vegna sér­þekk­ingar starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins á þeim sér­tryggðu skulda­bréfum sem til stendur að selja. Hjá Summu starfa nefni­lega fjórir menn sem allir gengdu háum stöðum í Kaup­þingi fyrir banka­hrun. Þeir heita Sig­ur­geir Tryggva­son, Haraldur Óskar Har­alds­son, Hrafn­kell Kárason og Ómar Örn Tryggva­son. Menn­irnir fjórir eiga líka 34 pró­sent hlut í Summu á móti Íslands­banka. Þeir réðu sig allir til félags­ins í fyrra og eign­uð­ust sam­tímis hlut í því. Þá var nafni félags­ins líka breytt úr rekstr­ar­fé­lagi Byrs í Summu rekstr­ar­fé­lag.

Haukur C. Bene­dikts­son, fram­kvæmda­stjóri ESÍ, sem réð Summu til verks­ins starf­aði einnig í Kaup­þingi með mönn­unum fjórum á árunum 2006 til 2008.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár