Ákæra vegna samráðs í byggingavöruiðnaði birt

Í byrjun maí voru þrettán manns ákærðir af sér­stökum sak­sókn­ara fyrir sam­keppn­islaga­brot vegna verð­sam­ráðs og hlut­deildar í slíkum á árunum 2010 og 2011. Menn­irnir þrettán voru allir starfs­menn Byko, Húsa­smiðj­unnar og Úlfsins. Kjarninn hefur ákæruna undir höndum. Hana er hægt að lesa í heild sinni með því að smella á hlekk neðst í frétt­inni. Kjarninn fjall­aði auk þess ítar­lega um nið­ur­færslur skulda í þeim geira sem hin ætl­uðu brot áttu sér stað innan í síð­ustu útgáfu sinni. Lestu þá umfjöllun hér.

Ákæra sér­staks sak­sókn­ara er fyrir brot á sam­keppn­is­lögum. Fyrsti liður hennar snýr að verð­sam­ráði starfs­manna Byko og Húsa­smiðj­unnar á árunum 2010 og 2011. Í ákærunni er sagt frá mörgum til­fellum þar sem starfs­menn fyr­ir­tækj­anna tveggja tala saman og upp­lýsa hvora aðra um verð­upp­lýs­ingar á ákveðnum vöru­teg­undum.Alls eru til­fellin sem eru til­greind í ákæru­skjal­inu 21 tals­ins.

„Við erum bara að drepa hvern annan"


Í öðrum lið ákærunnar er fjallað um verð­sam­ráð Byko og Úlfsins bygg­inga­vara á árunum 2010 til 2011. Í skjal­inu eru til­greind alls ell­efu til­felli þar sem starfs­menn þeirra stund­uðu meint verð­sam­ráð. Í þriðja lið er fjallað um hvatn­ingu til verð­sam­ráðs milli Húsa­smiðj­unnar og Byko í tveimur til­fellum í febr­úar 2011. Fjórði liður snýr að verð­sam­ráði og hvatn­ingu til verð­sam­ráðs milli Byko og Húsa­smiðj­unnar i tengslum við til­boðs­gerð í lok febr­úar 2011. Í sam­tali milli starfs­manna fyr­ir­tækj­anna tveggja, sem sagt er frá í ákærunni, segir meðal ann­ars að til­boðs­gerð í gróf­vörum væru „komið bara í algjört bull sko“. Síðar segir starfs­maður Byko við starfs­mann Húsa­smiðj­unnar að „þetta eru hjaðn­inga­víg [...] Við erum að blæða báðir tveir“ og „við erum bara að drepa hvern [svo] annan“.

Fimmti liður ákærunnar fjallar um til­raunir starfs­manna Byko og Húsa­smiðj­unnar við að koma á sam­ráði við starfs­mann Múr­búð­ar­innar í októ­ber 2010, en sú til­raun mark­aði upp­haf rann­sóknar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á bygg­inga­vöru­mark­aði eftir að hún var til­kynnt.

Sér­stakur sak­sókn­ari krefst þess að menn­irnir þrettán verði dæmdir til refs­ingar. Fang­els­is­vist getur legið við hluta brot­anna.

Lestu ákæruna í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár