Spes: Fékk sér húðflúr með merki staðarins á rassinn

Hinn nítján ára gamli Bradley Holman, frá þorp­inu Lower Kingswood á Englandi, er svo mik­ill aðdá­andi Nando‘s-veit­inga­staða­keðj­unnar að hann húð­flúraði merki stað­ar­ins á hægri rasskinn sína. Holman vildi tryggja sér ókeypis mál­tíðir frá Nando‘s með upp­á­tæk­inu. Hann lét húð­flúra á sig merkið á ferða­lagi með vinum sínum á Krít.

Nando‘s hefur engu að síður synjað beiðni hans um svo­kallað svart kort, sem tryggir honum ókeypis mál­tíðir, en Holman ver hátt í þrjú hund­ruð þús­und krónum á ári í upp­á­halds­rétt­inn sinn; heilan bragð­sterkan kjúkling með hvít­lauks­brauði.

Holman hefur boð­ist til að láta húð­flúra svart kort frá Nando‘s á vinstri rasskinn­ina til að hljóta náð fyrir augum veit­inga­stað­ar­ins. Holman segir að dugi það ekki til muni hann láta fjar­lægja merki veit­inga­stað­ar­ins af aft­ur­end­anum.

„Þá læt ég bara setja merki KFC í stað­inn, sem er miklu betra í hrein­skilni sagt,“ segir Holman í breskum fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár