Spes: Fær ekki að spila nema hann fari í klippingu

Hinn 16 ára gamli Liam Nazarek frá bænum Pincher Creek í Kanada hóf að safna hári fyrir rúmu ári svo hann gæti gefið það sam­tökum sem búa til hár­kollur fyrir krabba­meins­sjúk­linga. Upp­á­tækið hefur hins vegar ein­hverra hluta vegna mætt harðri and­stöðu hafna­bolta­þjálf­ara hans, Bryan MacKenzie, sem bann­aði Liam að spila með lið­inu nema hann færi í klipp­ingu.

Móðir Liams, Kim Jorg­en­son, var skilj­an­lega ósátt við ákvörðun þjálf­ar­ans og átti við hann orða­stað eftir leik liðs­ins á dög­unum, sem hún tók upp á sím­ann sinn. Mynd­bandið og frétt um málið er hægt að sjá hér.

Eftir að mynd­band­inu var dreift á sam­fé­lags­miðlum sendi hafna­bolta­sam­band Pincher Creek frá sér yfir­lýs­ingu þar sem lýst er yfir stuðn­ingi við hafna­bolta­þjálf­ar­ann og móð­irin er gagn­rýnd harð­lega fyrir mynd­bands­upp­tök­una.

Liam Nazarek hefur form­lega verið rek­inn úr lið­inu en annað hafna­boltalið í nágrenn­inu hefur boðið honum að spila með því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár