Sextán milljarða króna eftirgjöf

Samkvæmt ítar­legri rann­sókn Kjarnans nam eft­ir­gjöf skulda hjá fyr­ir­tækjum í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð hátt í sextán millj­örðum króna á árunum 2010 til 2012. Rannsókn Kjarnans náði til upp­lýs­inga sem fram koma í árs­reikn­ingum félaga sem falla undir bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð sam­kvæmt ÍSAT atvinnu­greina­flokkun Evr­ópu­sam­bands­ins sem inn­leidd var hér á landi árið 2008, og skil­uðu árs­reikn­ingum á umræddu tíma­bili. Félögin sem um ræðir eru á þriðja þús­und tals­ins.

Starf­semi þeirra er marg­þætt og mis­mun­andi; þau ann­ast allt frá þróun bygg­ing­ar­verk­efna, bygg­ingu íbúða- og atvinnu­hús­næðis, brú­ar­smíði og jarð­ganga­gerð, upp­setn­ingu inn­rétt­inga, vega­gerð og annan frá­gang bygg­inga. Upp­taln­ingin er hvergi nærri tæm­andi, enda geir­inn víð­feðmur og ýmis smá­sölu­fyr­ir­tæki með bygg­ing­ar­vöru sem þjón­usta bygg­ing­ar­geir­ann ekki höfð með í reikn­ingnum.
Hinn mikli fjöldi einka­hluta­fé­laga í geir­anum er til marks um mik­inn upp­gang í grein­inni árin fyrir banka­hrunið og hefur tölu­vert kenni­tölu­flakk verið við­loð­andi geir­ann á und­an­förnum miss­erum.

Lestu meira um málið í Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár