Húsnæðismarkaði gjörbylt með dönsku leiðinni

Miklar og rót­tækar breyt­ingar verða gerðar á íslenskum hús­næð­is­mark­aði ef til­lögur verk­efna­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála verða að frum­varpi og síðar lögum. Til­lög­urnar verða kynntar í dag. Á meðal þess sem þar er lagt til er að Íbúða­lána­sjóður verði lagður niður í núver­andi mynd og að hann hætti að lána, en lána­safn hans og skulda­bréf verði látin „vinda“ sig niður yfir líf­tíma skulda­bréf­anna. Enn sem komið er mun vera ekki fyr­ir­hugað að fara í ein­hvers­konar skil­mála­breyt­ingu á skulda­bréf­unum sem myndi gera Íbúða­lána­sjóði kleift að greiða þau upp fyrr en áður. Tillögur starfs­hóps­ins voru ræddar í rík­is­stjórn í morgun. Eygló Harð­ar­dóttir vel­ferð­ar­ráð­herra ber ábyrgð á vinn­unni.

Í stað þessa kerfis verður farið svokölluð „dönsk-leið“ og sett upp nýtt hús­næð­is­lána­kerfi. Þar munu sér­stök hús­næð­is­lána­fé­lög ann­ast lán­veitn­ing­arnar. Félögin munu gefa út sér­tryggða skulda­bréfa­flokka og afrakstur af sölu þeirra mun not­ast til hús­næð­is­lána. Eigendur þess­arra félaga verða íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki en auk þess verður sett upp nýtt opin­bert hús­næð­is­lána­fé­lag. Munurinn á því og Íbúða­lána­sjóði er að eng­inn rík­is­á­byrgð verður á starf­semi þess. Ríkið er því ekki alveg horfið af íbúða­lána­mark­aði.

Hús­næð­is­bætur og stofn­styrkir

Þá er stefnt að því að bregð­ast við kröfum um aukna nið­ur­greiðslu á hús­næð­is­kostn­aði með sér­stökum hús­næð­is­bótum. Vaxta­bætur og húsa­leigu­bætur verða sam­ein­aðar undir því nafni. Þetta er hug­mynd sem síð­asta rík­is­stjórn vann líka mikið með en heim­ildir Kjarnans herma að mynd­ar­legri fjár­hæð verði varið í að hækka þessar bætur til handa hús­næð­is­eig­endum og leigj­endum.

Til­lög­urnar munu líka miða að því að taka á því neyð­ar­á­standi sem ríkir á hús­næð­is­mark­aði vegna skorts á minni íbúðum og gríð­ar­lega háum leigu­verði. Lagt verður til að leigu­fé­lög sem verða ekki rekin með hagn­að­ar­sjón­ar­miðum muni fá sér­staka stofn­styrki frá hinu opin­bera. Með þessu á að hvetja til bygg­ingar á þessum eignum sem mest vöntun er á sem fyrst. Auk þess verða ýmsir hvatar sem eiga að auka fram­boð á leigu­í­búðum kynntir.

Ítarlega verður fjallað um málið og afleið­ingar þess í Kjarn­anum á fimmtu­dags­morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár