Viðskipti með bréf Íbúðalánasjóðs stöðvuð

Hlutverk Íbúða­lána­sjóðs mun verða tak­markað mikið í nán­ustu fram­tíð, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans. Búið er að stöðva við­skipti með skulda­bréf Íbúða­lána­sjóðs til að gæta jafn­ræðis fjár­festa, en til­lögur starfs­hóps um fram­tíð­ar­skipan á hús­næð­is­mark­aði verða kynntar opin­ber­lega síðar í dag.

Ljóst er að við­skipti með bréf sjóðs­ins væru ekki stöðvuð nema að framundan væru miklar breyt­ingar á starf­semi hans. Heim­ildir Kjarnans herma að starf­semi hans verði hætt og nýtt lána­fyr­ir­komu­lag tekið upp til að fjár­magna hús­næð­is­kaup. Tillögur starfs­hóps­ins voru ræddar í rík­is­stjórn í morgun og lík­legt verður að telja að þær séu afar rót­tækar, enda ríkir neyð­ar­á­stand á hús­næð­is­mark­aði. Eygló Harð­ar­dóttir vel­ferð­ar­ráð­herra ber ábyrgð á vinn­unni.

Stærstur hluti skulda­bréfa Íbúða­lána­sjóðs er í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár