Tveir flóttamenn á mínútu

Sýr­lenska þjóðin hefur verið á flótta und­an­farin fjögur ár. Borg­ara­styrj­öld í heima­land­inu hefur hrakið um sjö millj­ónir á ver­gang og yfir 150.000 liggja í valnum. Vægð­ar­leysið er algert, átökin skilja eftir sig sviðna jörð og haldi fram sem horfir verður landið rústir einar. Grunur er um að efna­vopnum hafi verið beitt gegn almennum borg­urum. Sögur af sveltu fólki, pynt­ingum og aftökum eru hræði­legar. Eins og á öðrum átaka­svæðum beita and­stæð­ingar nauðg­unum kerf­is­bundið í þeim til­gangi að nið­ur­lægja hver aðra og þær stúlkur og konur sem fyrir ofbeld­inu verða eru hlut­gerðar í orðs­ins fyllstu (og verstu) merk­ingu. Stríð­andi fylk­ingar umkringja heilu hverfin og strá­fella íbú­ana, sem enga und­an­komu­leið eiga. Hjálp­ar­sam­tök kom­ast ekki að fólk­inu sem innikróað er á átaka­svæð­unum. Starfs­fólk, sjálf­boða­liðar og sjúkra­bílar Rauða hálf­mán­ans eru skot­mörk og alls hafa 34 verið myrtir við störf sín báðum megin víg­lín­unnar síðan átökin hófust. Í Sýrlandi ríkir neyð­ar­á­stand.


Lítið land, stórt vandamál


Líbanon er lítið land fyrir botni Mið­jarðar­hafs, umlukið Sýrlandi með landa­mæri í suðri að Ísrael/Palest­ínu. Ekki þarf að hafa um það mörg orð hve mik­il­vægt og erfitt það er fyrir svo fámenna þjóð (4,5 millj­ónir) að halda frið og hlut­leysi með svo öfl­uga nágranna. Þrátt fyrir að vera lang­minnst nágranna­landa Sýrlands, aðeins um 10.000 km2 að stærð (Ísland er um 103.000 km2), hýsir það stærstan hluta þeirra sem flúið hafa átökin. Áætla má að nú þegar séu um 1,5 millj­ónir Sýr­lend­inga í Líbanon og ekk­ert lát virð­ast vera á fjölgun þeirra. Sam­ein­uðu þjóð­irnar skrá að með­al­tali tvo nýja flótta­menn inn í landið á hverri mín­útu. Nú þegar eru sýr­lenskir flótta­menn fjórð­ungur íbúa lands­ins; hlut­fall sem á sér enga hlið­stæðu.

Þetta er örstutt brot úr frétta­skýr­ingu Kjarnans um ástandið í Líbanon. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár