RÚV og Kjarninn njóta mest trausts á meðal háskólafólks

Kjarninn er sá fjöl­mið­ill í einka­eigu sem nýtur mest trausts á meðal háskóla­manna. Einungis Rík­is­út­varpið (RÚV) nýtur meira trausts innan þess hóps en Kjarninn. Traust til ann­arra miðla reynd­ist langtum minna en sjá má í sams konar könn­unum sem MMR hefur gert meðal almenn­ings. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðu­stöðum nýrrar könn­unar Björns Gísla­sonar um við­horf háskóla­fólks til þátt­töku í opin­berri umræðu á vett­vangi fjöl­miðla. Ítar­legra er greint frá nið­ur­stöð­unum í nýj­ustu útgáfu Kjarnans. Könnunin var send á um 750 manns sem starfa innan háskól­anna á Íslandi og var svar­hlut­fall um 40 pró­sent.

Af þeim sem svör­uðu sögð­ust 91,96 pró­sent bera mikið traust til hljóð­varps Rík­is­út­varps­ins og 78,62 pró­sent treystu sjón­varps­hluta Rík­is­út­varps­ins vel. Af einka­miðl­unum ríkir mest traust á meðal háskóla­manna til Kjarnans, en 34,4 pró­sent treysta honum mikið. Það er umtals­vert hærra hlut­fall en sem treystir rót­grónum dag­blöðum á borð við Morg­un­blaðið, Frétta­blaðið og Við­skipta­blaðið. Fáir háskóla­menn treysta DV, miðlum Vef­press­unar, ÍNN óg útvarpi Sögu.

Í könn­un­inni var einnig spurt um van­traust til fjöl­miðla. Sá mið­ill sem minnst van­traust er gagn­vart er hljóð­varp Rík­is­út­varps­ins, en ein­ungis 1,05 pró­sent van­treysta því. Í öðru sæti yfir minnst van­traust er Kjarninn, ein­ungis 3,9 pró­sent háskóla­manna van­treysta honum. Það er miklu lægra hlut­fall en hjá dag- og viku­blöðum lands­ins. Mest van­traust var gagn­vart Útvarpi Sögu og DV. Yfir 60 pró­sent svar­enda van­treysti þessum miðlum.

Rit­stjórn Kjarnans fagnar því trausti sem henni er sýnt og nið­ur­stöður könn­un­ar­innar hvetja hana áfram til góðra verka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár