Spes: Þarf að missa 127 kíló fyrst fyrir hjáveituaðgerð

Hin 38 ára gamla Charity Pierce er þyngsta kona í heimi, en hún vegur tæp 356 kíló. Charity er nú komin í megrun, en hún er harð­á­kveðin í því að ganga að alt­ar­inu til að eiga unnusta sinn, hinn tággr­anna 22 ára gamla Tony Saur.

Til þess að af gift­ing­unni geti orðið þarf Charity, sem hefur ekki farið út úr húsi síðan árið 2001 sökum stærðar sinnar, að missa 127 kíló svo hún kom­ist í hjá­veitu­að­gerð. Læknar hafa ítrekað varað Charity við því að hún verði ekki lang­líf nema hún létt­ist tölu­vert.

Tony hefur aðstoðað Charity við að fækka hita­ein­ingum úr 10.000 niður í 1.500 á dag. Fyrir megr­un­ina borð­aði hún morg­un­korn, tvær pít­sur, tvær stórar sam­lokur, fimm kleinu­hringi, tvo diska af lasagna, Kit-Kat súkkulaði­stykki, stóra skál af poppi og sæt­indi á degi hverjum.

Í við­tali við banda­ríska fjöl­miðla sagði Tony: „Ég hef aldrei sett þyngd Charity fyrir mig. Ég veit að hún verður fal­leg brúður. Ég hef áhyggjur af því að hún deyi, en ég ætla að hjálpa henni að létt­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár