Spes: Stjarnfræðilegur launamunur í ruslfæðinu

Starfs­menn skyndi­bita­keðja í Banda­ríkj­unum þéna að með­al­tali níu Banda­ríkja­dali á klukku­tím­ann, en bág­borin launa­kjör þeirra hafa verið reglu­lega til umfjöll­unar í þar­lendum fjöl­miðlum.

Samkvæmt fjöl­miðlum vestan hafs greiddi mat­væla­fyr­ir­tækið YUM!, móð­ur­fé­lag KFC, Taco Bell og Pizza Hut, for­stjór­anum sínum 22 millj­ónir Banda­ríkja­dala í laun á síð­asta ári. For­stjóri McDonalds fékk heldur minna, 7,7 millj­ónir Banda­ríkja­dala.

Með­al­laun for­stjóra í skyndi­bita­geir­anum hafa fjór­fald­ast síðan árið 2000. Í rusl­fæð­inu hafa topp­arnir yfir þús­und­föld laun hinna lægst laun­uðu, sem er mesti launa­munur í banda­ríska hag­kerf­inu. Til sam­an­burðar má nefna að for­stjórar smá­sölu­fyr­ir­tækja í Banda­ríkj­unum eru með 304-föld laun þeirra sem minnst þéna í geir­anum, og í bygg­inga­geir­anum er mun­ur­inn 93-faldur.

Lág laun í rusl­fæð­is­geir­anum hafa orðið til þess að ríf­lega helm­ingur þeirra lægst laun­uðu neyð­ast til að fram­fleyta sér og sínum með félags­legum úrræðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár