Ferdinand, Svejk og púðurtunnan

Tékkinn Jaroslav Hasék (1883–1923) skrif­aði upp­á­halds­bók mína, Góða dát­ann Svejk. Karl Ísfeld þýddi snilld­ar­lega. Í bók­inni ræðst Hasék gegn stórum og djúpum sið­ferði­legum spurn­ingum þegar kemur að stríði með hníf­beittan húmor og nátt­úru­lega frá­sagn­ar­gáfu að vopni. Hann lést, aðeins fer­tugur að aldri, áður en hann náði að klára öll bindi sög­unnar; fjórum af sex var lokið. En útgáfa þess efnis sem hann hafði lokið hefur fengið heilu kyn­slóð­irnar til þess að velt­ast um af hlátri og hugsa til hörm­unga stríðs­tím­ans í Evrópu, ekki síst Austur-Evrópu. Frá­sagn­ar­gáfa Haséks var mögnuð og afköstin á stuttum ferli með ólík­indum. Hann skrif­aði ríf­lega 1.200 smá­sögur, margar hverjar fullur við bar­borð á öld­ur­húsum í Prag.


Hugsað til Svejk


Að und­an­förnu hefur mér verið hugsað til þess­arar bókar. Einkum upp­hafs hennar, þegar Svejk er að láta raka sig. Þá fær hann upp­lýs­ingar um það þegar erki­her­tog­inn Franz Ferdin­and var drep­inn í Sarajevo hinn 28. júní 1914. Í kjöl­farið hefst sagan óborg­an­lega af Svejk, dát­anum sein­heppna. Hann gengur í her­deild Aust­ur­rísk-ung­verska keis­ara­dæm­is­ins og hefur síðan göngu sína í gegnum hörm­ungar fyrri heims­styrj­ald­ar­innar.

Á mánu­dag­inn fékk ég stutt skila­boð í sím­ann minn frá frétta­þjón­ustu Wall Street Journal, þar sem sagði orð­rétt: Tug­þús­undir rúss­neskra her­manna eru við landa­mæri Úkraínu. Raðir skrið­dreka sömu­leiðis. Spennan magn­ast.

Í Úkraínu, alveg eins og Sarajevo á sum­ar­mán­uðum 1914, er uppi ógn­væn­leg staða. Landið er, að því er virð­ist, að lið­ast í sundur innan frá. Þannig var staðan einnig þegar bíla­röð Franz Ferdin­ands og fylgi­sveina hans varð fyrir skotárásinni í heim­sókn­inni til Oskars Potiorek hers­höfð­ingja sem hafði boðið erki­her­tog­anum að vera við­staddur her­sýn­ingu. Inn­an­mein, efna­hags­legir erf­ið­leikar, sund­ur­lyndi og sífellt vax­andi sam­fé­lags ólga breytti sam­fé­lags­gerð­inni í púð­ur­tunnu sem sprakk.

Getur svipað gerst núna? Geta stríðs­á­tök brot­ist út í Austur-Evrópu þar sem Rússar eru helsta ógnin við nágranna­ríkið Úkraínu? Er hættan á þessu ofmetin?

Spurningarnar eru komnar fram


Þessar spurn­ingar eru farnar að sjást víða í fjöl­miðla­um­ræðu á erlendum vett­vangi og ýmsir stjórn­mála­menn virð­ast telja að Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, sé hættu­legur og veru­leikafirrtur. Angela Merkel sagði það berum orðum og Carl Bildt sagði að Pútín myndi ekki linna látum fyrr en hann væri búinn að ná algjörum yfir­tökum í Kíev, höf­uð­borg Úkraínu.

Enginn getur sagt til um það með vissu hvort stríð getur brot­ist út en spor sög­unnar hræða. Ólíkt því sem var þegar morðið á Franz Ferdin­and ýtti fyrri heims­styrj­öld­inni af stað, þó að slíkt sé vita­skuld ein­földun á flókn­ari atburða­rás, er sterkt frið­ar­hvetj­andi fyr­ir­komu­lag fyrir hendi sem birt­ist í alþjóða­pólítískum stofn­unum. Þar eru Sam­ein­uðu þjóð­irnar og Evr­ópu­sam­bandið áber­andi, en einnig vett­vangur þar sem helstu iðn­ríki heims­ins eiga með sér sam­starf á póli­tískum for­sendum. Stundum þarf að minna á það hversu stutt er síðan þessi stóru og miklu fram­fara­skref voru stigin með stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna árið 1945 og Kola- og stál­banda­lags Evrópu árið 1952, sem síðar varð vísir að Evr­ópu­sam­band­inu. Veiga­mesta ástæðan fyrir stofnun SÞ og ESB var við­leitni til þess að koma í veg fyrir stríð. Það hefur ekki alltaf tek­ist en það eru meiri líkur á að svo verði á meðan þessar mik­il­vægu stofn­anir eru virkur vett­vangur um hvernig skuli taka á vanda­málum eins og því sem nú blasir við í Úkraínu.

Saga hörm­unga stríðs­á­taka í Austur-Evrópu, sem Hasék hjálpar kyn­slóð­unum að gleyma ekki í gegnum dát­ann Svejk, er víti til að var­ast. Það er huggun harmi gegn að búa við alþjóða­póli­tíska sam­vinnu þegar sam­fé­lags­legar púður­tunnur verða til, en alveg eins og þegar Franz Ferdin­and var skot­inn geta hlut­irnir breyst leift­ur­snöggt til hins verra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár