Suðupunktur nálgast í Úkraínu

Þegar bráða­birgða­stjórn tók við völdum í Úkraínu eftir að Viktor Janúkovitsj hrökkl­að­ist frá völdum í febr­úar var efna­hags­á­standið stærsta verk­efnið sem þá blasti við. Á tveimur mán­uðum hefur margt breyst, ekki bara landa­mæri rík­is­ins. Daglega ber­ast fréttir af upp­reisn í aust­ur­hluta lands­ins. Á mánu­dag var borg­ar­stjóri Kharkiv skot­inn í bakið og á þriðju­dag voru enn fleiri stjórn­ar­bygg­ingar her­teknar af upp­reisn­ar­mönnum, sem nú hafa slíkar bygg­ingar á sínu valdi í rúm­lega tíu borgum og bæjum.

Hvað vilja uppreisnarmennirnir og hverjir eru þeir?


Upp­reisn­ar­menn­irnir í aust­ur­hluta Úkraínu vilja aukna sjálf­stjórn, jafn­vel sjálf­stæði, og sumir vilja verða hluti af Rúss­landi. Þeir segj­ast ótt­ast að rúss­nesku­mæl­andi fólk í land­inu verði kúgað af stjórn­völdum. Þeir njóta nokk­urs stuðn­ings meðal almenn­ings, enda eru margir óánægðir. Þá eru þær raddir háværar sem segja að núver­andi stjórn­völd séu ólög­mæt. Úkra­ínska þingið hefur í vik­unni rætt mögu­leik­ann á því að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort landið eigi að vera sam­einað áfram eða breyt­ast í ríkja­sam­band þar sem hvert svæði hefði aukin völd. Þingmenn hafa ekki kom­ist að neinni nið­ur­stöðu og eru ósam­mála um orða­lag og hvaða spurn­inga ætti að spyrja.

Upp­reisn­ar­menn­irnir eru færri en tóku þátt í inn­limun Krím­skaga. Flestir telja að þeir séu nokkuð hund­ruð, og þeim má skipta í tvo hópa. Annars vegar eru það her­menn, menn sem ganga um í ómerktum ein­kenn­is­bún­ingum og eru ber­sýni­lega vel þjálfaðir og vel vopn­aðir. Hins vegar er verr skipu­lagður og vopn­aður hópur upp­reisn­ar­manna af hverjum stað eða svæði fyrir sig.

Þrátt fyrir að sumir haldi því fram að upp­reisnin sé sjálf­sprottin hjá fólki á svæð­inu er svo ekki að öllu leyti. Ólig­arkar, úkra­ínskir auð­menn, eru taldir hafa fjár­magnað upp­reisn­ina að hluta. Þeir vilja sjálf­stjórn en ekki rúss­nesk yfir­ráð, og fyrst og fremst vilja þeir halda áfram að auðg­ast á auð­lindum lands­ins. Einnig bendir margt til þess að rúss­neski her­inn og leyni­þjón­ustan hafi verið viðriðnir upp­reisn­ina. Blaða­menn á þessum svæðum hafa greint frá því að upp­reisn­ar­menn hafi sumir við­ur­kennt að vera rúss­neskir rík­is­borg­arar, og bæði Banda­ríkja­menn og Atl­ants­hafs­banda­lagið (NATO) segj­ast hafa fyrir því sann­anir að Rússar stjórni atburða­rásinni.

Þetta er örstutt útgáfa af ítar­legri grein­ingu á ástand­inu í Úkraínu. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár