Sjóðurinn sem kostaði okkur mest

Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík virð­ist, sam­kvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um spari­sjóð­ina, hafa verið einna verst rek­inn allra spari­sjóð­anna. Vaxta­munur hans var til að mynda oft­ast lægri en hjá öllum hinum sjóð­unum, útlán hans virð­ast hafa verið ótrú­lega illa und­ir­byggð, afkoma sjóðs­ins var nán­ast ein­vörð­ungu bundin við gengi hluta­bréfa sem hann átti og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara að rann­saka nokkur mál tengd honum.
Vegna þess­ara þátta var afkoma sjóðs­ins af kjarna­rekstri nei­kvæð frá árinu 2003 og fram að þeim degi þegar hann féll. Samtals nam tapið 30 millj­örðum króna, en þorri þeirrar upp­hæðar kom til á árunum 2008 og 2009. Til að setja slakan und­ir­liggj­andi rekstur sjóðs­ins í sam­hengi nam tap af kjarna­rekstri hans, hefð­bund­inni banka­starf­semi, 700 millj­ónum króna á árinu 2006 þrátt fyrir að kynntur hagn­aður fyrir skatta væri tæpir 5,6 millj­arðar króna.


Vildi vera litla lestin sem gat


Ef ein­hver spari­sjóð­anna vildi fá að vera litla lestin sem gat þá var það Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík. Samkvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um starf­semi spari­sjóð­anna fimm­föld­uð­ust eignir hans á fimm árum og námu sam­tals 98 millj­örðum króna í lok árs 2008. Tvennt skipti mestu máli fyrir þennan vöxt: útlán sjóðs­ins höfðu fimm­fald­ast á tíma­bil­inu og virði hluta­bréfa, að mestu óbein eign í Existu í gegnum fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Kistu og í Icebank/Spari­sjóða­bank­anum, hækk­aði mikið. Í árs­lok 2006 voru til dæmis nærri 70 pró­sent af öllu eigin fé spari­sjóðs­ins bundin í hluta­bréfum í Existu, ann­að­hvort beint eða óbeint. Þá voru ótalin áhrif Existu í Spari­sjóða­bank­anum, sem spari­sjóð­ur­inn átti tólf pró­sent í.
Auk þess yfir­tók sjóð­ur­inn nokkra minni sjóði víða um land, sem leiddi til þess að eigna­safnið stækk­aði.

Þetta er örstutt brot úr ítar­legri umfjöllun Kjarnans um Spari­sjóð­inn í Keflavík út frá skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um starf­semi spari­sjóð­anna. Lestu hana i heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár