Triphala, hvað er nú það?

Triphala er ekki nafn á einni jurt heldur heiti á ævafornri blöndu af þremur ind­verskum ávöxtum: Haritaki (Term­ina­lia chebula), bib­hitaki (Term­ina­lia bellirica) og amalaki (Emblica officinalis) í jöfnum hlut­föllum. Triphala er ein elsta og þekktasta jurta­blanda sem um getur á Indlandi en und­an­farna ára­tugi hefur hún einnig náð miklum vin­sældum á Vest­ur­löndum og er nýfarin að fást á Íslandi. Á Indlandi er trip­hala jafn vin­sælt og lýsið hér­lendis og þykir hafa ákaf­lega fjöl­breyti­leg áhrif. Ind­verskt mál­tæki lýsir til dæmis ágæt­lega trú manna á þessa blöndu: „Ef þú ert móð­ur­laus þarftu ekki að hafa áhyggjur svo lengi sem þú átt trip­hala!“

Amalaki, einn af ávöxt­unum í trip­hala, inni­heldur til dæmis mun meira magn af C- vítamíni en app­el­sínur og er C- vítamínið þar að auki hita­þolið. Triphala hefur bæði andox­andi og bólgu­eyð­andi áhrif en er einna þekkt­ast fyrir góð áhrif á melt­ing­ar­sjúk­dóma, og þá sér í lagi hægða­tregðu.

Þetta er örstutt brot úr grein Önnu Rósu grasa­læknis í nýjasta Kjarn­anum. Lestu hann allan hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár