Vanhæfi, áhætta og græðgi

Við stofnun árið 2006 var Byr spari­sjóður stærsti spari­sjóður lands­ins, en rekstur sjóðs­ins skil­aði hagn­aði upp á tæpa 2,7 millj­arða króna á fyrsta rekstr­ar­ári hans. Eignir sjóðs­ins í árs­lok 2006 námu 22 pró­sentum af sam­an­lögðum eignum allra spari­sjóða í land­inu og í lok árs 2007 voru þær um þrjá­tíu pró­sent af heild­ar­eign allra spari­sjóða. Í lok árs 2007 nam eigið fé hans rúmum 53 millj­örðum króna og eig­in­fjár­hlut­fallið var 40,2 pró­sent á sama tíma. Sterk staða sjóðs­ins skýrð­ist fyrst og fremst af 26,3 millj­arða króna stofn­fjár­aukn­ingu í des­em­ber 2007, þeirri mestu í spari­sjóða­kerf­inu fyrr og síðar.

Um helm­ingi stofn­fjár­aukn­ing­ar­innar var svo varið til greiðslu arðs til stofn­fjár­eig­enda þremur mán­uðum síðar. Staða sjóðs­ins veikt­ist mikið á haust­mán­uðum 2008, en eig­in­fjár­hlut­fall hans í árs­lok 2008 var komið niður í 8,3 pró­sent, sem er rétt yfir lög­bundnu lág­marki.

Byr spari­sjóður tap­aði 16,5 millj­örðum króna á fyrri hluta árs 2009, en heild­ar­tap sjóðs­ins það ár nam 38,8 millj­örðum króna. Einungis virð­is­rýrnun útlána nam 38,2 millj­örðum króna árið 2009, og í lok árs­ins var eigið fé sjóðs­ins orðið nei­kvætt um 22,6 millj­arða króna og eig­in­fjár­hlut­fallið nei­kvætt um 18,5 pró­sent. Tap sjóðs­ins á árunum 2008 og 2009 má helst rekja til geng­is­taps af fjár­eignum og umtals­verðs fram­lags í afskrifta­reikn­ing vegna virðis­rýrn­unar útlána.

Þetta er örstutt brot úr ítar­legri umfjöllun Kjarnans um Byr spari­sjóð. Lestu Kjarnann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár