Vaxtardraumar Alvogen

Róbert Wessman, for­stjóri og for­sprakki alþjóð­lega lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, hefur talað fyrir miklum vaxt­ar­á­formum fyr­ir­tæk­is­ins hjá alþjóð­legum bönkum að und­an­förnu og er stefnan sett á að auka tekjur marg­falt á næstu þremur árum. Í einni sviðs­mynd­inni sem teiknuð var upp í kynn­ingu Róberts fyrir aust­ur­ríska bank­ann Reiffeisen hinn 28. októ­ber í fyrra, sem Kjarninn hefur undir höndum, kemur fram að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins á þessu ári verði 460,6 millj­ónir Banda­ríkja­dala en muni vaxa uppi í 902,5 millj­ónir dala á árinu 2017; tæp­lega tvö­fald­ast á þremur árum. Miðað við núver­andi gengi krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef­síðu Seðla­banka Íslands nema 902,5 millj­ónir dala ríf­lega hund­rað millj­örðum króna.

Einnig er gert ráð fyrir að EBITDA-hagn­aður (rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir, fjár­magnsliði og skatta) muni vaxa jafnt og þétt á þessum tíma; fara úr 69,2 millj­ónum dala í 217,2 millj­ónir dala. Helsta mark­aðs­svæði fyr­ir­tæk­is­ins er Banda­ríkin, að því er fram kemur í kynn­ing­unni, en af ríf­lega 69,2 millj­óna dala EBITDA-hagn­aði fyr­ir­tæk­is­ins á þessu ári munu 52,3 millj­ónir dala koma frá Banda­ríkj­unum. Önnur sterk mark­aðs­svæði Alvogen eru Mið- og Austur-Evrópa og Asía.

Þetta er örstutt brot úr umfjöllun Kjarnans um vaxta­drauma Alvogen. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár