Baráttan við páskaeggið

Pásk­arnir eru kær­komið frí eftir langan vetur, fyrsta ferða­helgi árs­ins, tæki­færi fyrir fjöl­skyld­una til þess að fara saman í bústað­inn, hvíla sig þar og treysta böndin. Þeir eru í augum nútíma­manns­ins miklu hedónísk­ari skemmtun og slökun en hinir grafal­var­legu páskar fyrri tíðar.

Hugsið ykkur páska án inter­nets, án útvarps nema Rásar eitt og án sjón­varps nema RÚV. Bætið því svo í blönd­una að allar skemmt­anir eru bann­aðar og skemmti­staðir lok­aðir, öll kvik­mynda­hús og versl­anir eru lokuð, veit­inga­staðir sömu­leiðis og mann­fagn­aðir engir í boði aðrir en messur og hugs­an­lega lang­dregnir hátíða­tón­leikar. Á dag­skrá útvarps og sjón­varps eru alvöru­þrungnar úttektir og umfjall­anir um dauða og pínu Jesú Krists milli þess sem heil tón­verk sem hæfa til­efn­inu eru flutt í fullri lengd.
Þetta voru seig­drep­andi, lang­dregnir og umfram allt ofboðs­lega leið­in­legir páskar og aðferðin við að fagna þeim hefur áreið­an­lega gert fleiri frá­hverfa trú­ar­brögðum en öll bisk­ups­mál seinni tíma sam­an­lagt.

Pásk­arnir í dag eru hátíð páska­eggs­ins, dýrðar­óður til stjórn­lauss súkkulað­i­áts, og eggið er eins konar mið­punktur eða háalt­ari í þeirri dýrkun.
Við höfum löngu gleymt því hvað gerð­ist á skír­dag og hvers vegna föstu­dag­ur­inn er svona óbæri­lega langur en í hugum okkar allra er páska­eggið skýrasta tákn­mynd þess­arar hátíðar. Páska­eggið er orðið að eins konar hlut­gerv­ingi fyrir hátíð­ina og hinir svoköll­uðu máls­hættir sem það inni­heldur nálg­ast óðum stöðu véfréttar eða spá­dóms. Opnun páska­eggs­ins og lestur máls­hátt­ar­ins verður hápunktur hátíðar sem við vitum ekki lengur hvers vegna er hátíð.

Þetta er örstutt brot úr umfjöllun Páls Ásgeirs. Lestu hana í heild sinni í Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár