Spes: Sér tækifæri í náttúruhamförum fyrir þjóð sína

Ummæli for­sæt­is­ráð­herra Íslands, smá­ríkis í Norður-Atl­ants­hafi, í þar­lendum fjöl­miðlum á dög­unum hafa vakið athygli á heims­vísu.

Þegar rík­is­fjöl­mið­ill­inn, RÚV, leit­aði við­bragða for­sæt­is­ráð­herr­ans við nýrri skýrslu Lofts­lags­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar sem fram kemur að hnatt­ræn hlýnun muni hafa gríð­ar­lega alvar­legar afleið­ingar fyrir alla jarð­ar­búa og þá sér­stak­lega þá allra fátæk­ustu, sagð­ist for­sæt­is­ráð­herr­ann sjá tæki­færi í ham­för­unum fyrir þjóð sína.

Í yfir­vof­andi vatns- og fæðu­skorti, hækk­andi mat­væla­verði, dýr­ari orku og auk­inni eft­ir­spurn eftir land­rými fælust tæki­færi fyrir Íslend­inga, ekki síst á sviði mat­væla­fram­leiðslu.

Máli sínu til stuðn­ings vís­aði for­sæt­is­ráð­herr­ann til kenn­inga um að á meðan ríki við mið­baug myndu glíma við mörg vanda­mál næstu árin vegna hlýn­andi lofts­lags myndu þjóðir á norð­lægum slóðum blómstra.

Ummæli for­sæt­is­ráð­herr­ans vöktu hörð við­brögð stjórn­ar­and­stöð­unnar á Íslandi, og ekki síst furðu víða um heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár