Ævintýrið um rúmfatakónginn

Þegar ungur Dani opn­aði litla verslun með rúm­fatnað í Árósum á Jótlandi vorið 1979 hefur sjálf­sagt engum, allra síst honum sjálfum, dottið í hug að 35 árum síðar yrði hann þriðji rík­asti maður Dan­merkur. Og jafn­framt númer 363 á lista banda­ríska við­skipta­tíma­rits­ins Forbes. Danir kalla þennan mann Dyne-Larsen.

Lars Larsen, Dyne Larsen eða Rúmfata-Larsen, skaust í heim­inn, eins og hann orðar það sjálfur, 6. ágúst 1948 kl. 13.08. Yngstur fjög­urra systk­ina sem fædd­ust á fimm árum. Sá skuggi hvíldi þó yfir þess­ari fjölgun í fjöl­skyld­unni að heim­il­is­fað­ir­inn, Lars Krist­inus Larsen, lést áður en dreng­ur­inn fædd­ist, aðeins 55 ára gam­all, og móð­irin, Signe Vera Kirstine Hansen, ákvað að sá stutti skyldi bera nafn föð­ur­ins og hann var því skírður Lars Krist­inus. Þegar þau Lars eldri og Signe kynnt­ust var hann kom­inn undir fimm­tugt en hún tíu árum yngri. Þau voru bæði af fátæku fólki komin en tókst að kaupa jörð við þorpið Arnborg á Mið-Jótlandi og lifðu fyrst og fremst af kart­öflu­rækt. Lars eldri tók tals­verðan þátt í félags­málum, sat í safn­að­ar­nefnd og í stjórn sjúkra­sam­lags­ins á svæð­inu. Signe var mjög trúuð og hafði starfað með Hjálp­ræð­is­hernum áður en hún gift­ist.

Þetta er örstutt brot úr umfjöllun Kjarnans um Rúmfata-Larsen. Lestu hana í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár