Nýr Sjálfstæðisflokkur í mótun

Nýtt frjáls­lynt, alþjóða­sinnað stjórn­mála­afl, sem stað­setur sig hægra megin við miðju, er í hraðri mótun. Um þessar mundir vinnur hópur fólks að því að und­ir­búa far­veg­inn og í gær lauk fyrstu könnun Capacent á því hvert mögu­legt fylgi slíks afls gæti orðið. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stendur til að birta nið­ur­stöður þeirrar könn­unar í dag. Fram­boðið, sem hefur ekki fengið nafn en hefur hjá hluta hóps­ins vinnu­heitið „Nýi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn“, ætlar sér ekki að verða eins stefnu­máls vett­vangur, þrátt fyrir að það sé að mynd­ast í kringum and­stöðu við slit á við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Þvert á móti er lögð áhersla á að bjóða upp á stóran stefnu­mála­pakka og breiða fylk­ingu fólks af fólki af báðum kynjum úr ýmsum stéttum þegar af fram­boði verður. Og það verður af fram­boði, það virð­ist ljóst.

Fjár­sterkur hópur

Hópurinn sem stendur að baki þessum hug­myndum er mjög fjár­sterkur. Hluti hans hefur styrkt Sjálf­stæð­is­flokk­inn mynd­ar­lega und­an­farin ár og ára­tugi. Þeim styrk­veit­ingum er nú að mestu lokið. Við­mæl­endur Kjarnans segja að verið sé að und­ir­búa tvenns konar ferla að fram­boði, enda skipti tíma­setn­ing öllu. Fyrri fer­ill­inn, „Plan A“, miðar við að kosn­ingar verði eftir að kjör­tíma­bil­inu lýkur, eftir þrjú ár. Sá síð­ari, „Plan B“, miðar við að hægt verði að setja saman og manna fram­boð á nokkrum vikum ef póli­tíski veru­leik­inn verði sitj­andi rík­is­stjórn ofviða.

Þetta er örstutt útgáfa af frétta­skýr­ingu um málið. Lestu hana í heild sinni í Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár