Meirihlutinn heldur velli og Píratar ná tveimur inn

Kjarninn og Baldur Héð­ins­son, doktor í stærð­fræði frá Boston Uni­versity, hafa tekið höndum saman og munu birta kosn­inga­spá um fylgi stjór­mála­flokka í Reykja­vík fram að kosn­ingum 31. maí. Vikuleg umfjöllun um nýj­ustu spána verður í Kjarn­anum. Spáin sam­einar nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­ana og byggir á áreið­an­leika könn­un­ar­að­ila í síð­ustu þremur borg­ar­stjórnar- og alþing­is­kosn­ingum. Hún er því ein­stök í Íslands­sög­unni.

Fylgi framboða til borgarstjórnar í Reykjavík


sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá gerðri 26. mars 2014

[visualizer id="4609"]

Í fyrstu kosn­inga­spánni kemur fram að Sam­fylk­ingin er stærsta stjórn­mála­aflið í höf­uð­borg­inni með 25,5 pró­senta fylgi. Björt fram­tíð, sem býður fram á grunni Besta flokks­ins, fylgir fast á hæla hennar með 24,9 pró­sent og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 23,8 pró­senta fylgi. Þessir þrír flokkar ná allir í fjóra borg­ar­full­trúa sam­kvæmt spánni og því gæti núver­andi meiri­hluti haldið velli. Píratar myndu ná tveimur full­trúum inn en Vinstri græn einum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með ein­ungis 2,9 pró­senta fylgi, sem er litlu meira en Dögun, sem mælist með 2,2 pró­sent. Hvorugt nær inn manni.


Röðun fulltrúa samkvæmt nýjustu spá


[visualizer id="4611"]

Þróun á fylgi flokka og fjölda borgarfulltrúa á flokk í Reykjavík


Kosn­inga­spá keyrð á tíma­bil­inu 26. febr­úar til 26. mars 2014

[visualizer id="4616"]

Sjá nánar á www.kosningaspa.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár