Græða á gagnanotkun, gefa símtöl

Þegar far­síma­væð­ingin hafði raun­gerst, og land­línusím­töl úrelt­ust að mestu, sner­ist bar­áttan á fjar­skipta­mark­aði lengi vel um að ná í við­skipta­vini og láta þá hringja og/eða senda mynd- eða smá­skila­boð til hvors ann­ars. Því meira sem fólk hringdi og því fleiri skila­boð sem það sendi, því meiri varð arður fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna. Sér­stak­lega ef við­skipta­vin­irnir voru erlendis. Þá kost­uðu sím­tölin og skeyta­send­ing­arnar oft ótrú­legar upp­hæðir, oft á tíðum án þess að fyrir rukk­un­inni væru við­skipta­legar for­sendur.

Nú er far­síma­tíma­bil fjar­skipta­geirans að líða undir lok og gagna­flutn­inga­tíma­bilið að taka við. Tíðni­heim­ildir fyrir 3G, fyrstu háhraða­kyn­slóð far­síma­nets­kerf­is­ins, voru boðnar út í lok árs 2006. Kerfið er í raun mun frekar net­kerfi en far­síma­kerfi og gerði gagna­flutn­ing mögu­legan. Allt í einu var mögu­legt að hlaða niður tón­list og horfa á kvik­myndir eða þætti í sím­anum sínum.

Nú stendur næsti fasi yfir. 4G-væð­ingin er í fullum gangi. Skrefið sem verður tekið upp á við með henni er stærra en margir átta sig á. Hraðinn á 4G-teng­ingu er tíu sinnum hrað­ari en í 3G og um þrisvar sinnum hrað­ari en hröð­ustu ADSL-teng­ingar.

Allir taka við sér
Öll stærstu íslensku fjar­skipta­fyr­ir­tækin, Síminn, Voda­fone, Nova og Tal, hafa nýverið kynnt nýjar þjón­ustu­leiðir sem taka mið af þessum nýja veru­leika í notkun. Í grófum dráttum snú­ast þær um að við­skipta­vinir borga ekki lengur fyrir sím­töl og skila­boða­send­ingar heldur greiða þess í stað fyrir ákveð­inn mega­bæta­pakka. Og verðið fyrir gagna­pakk­ana hækk­aði mjög mikið við þessar breyt­ingar.

Þetta er örstutt brot úr umfjöllun Kjarnans um ný við­skipta­módel fjar­skipta­fyr­ir­tækja. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár