Kaflabrot úr bók Inga Freys: Ráðinn í vinnu svo auðmaður gæti haldið við eiginkonuna

Á morgun, föstu­dag, kemur út bókin Ham­skiptin: þegar allt varð falt á Íslandi eftir Inga Frey Vil­hjálms­son, rit­stjórn­ar­full­trúa á DV. Í bók­inni rekur Ingi Freyr meðal ann­ars áhrif við­skipta­lífs­ins á hina ýmsu geira fyrir hrun og veltir fyrir sér hver ber ábyrgð á því að fór sem fór.

Hér að neðan er kafla­brot út upp­haf­skafla bók­ar­innar. Það birt­ist nú í fyrsta sinn:

„Mér og minni fjöl­skyldu var fórnað á alt­ari græðg­i­svæð­ing­ar­innar þar sem ekk­ert var heil­agt, ekk­ert.“ Til­vitn­unin er í íslenskan karl­mann á fimm­tugs­aldri sem vill ekki koma fram undir nafni. Maðurinn lenti í því árið 2003, meðan hann starf­aði í erlendri stór­borg sem iðn­að­ar­maður hjá íslensku útrás­ar­fyr­ir­tæki, að lands­þekktur auð­maður hélt við eig­in­konu hans á Íslandi. Auð­mað­ur­inn var stór hlut­hafi í fyr­ir­tæk­inu sem iðn­að­ar­mað­ur­inn starf­aði hjá í erlendu borg­inni. Iðn­að­ar­mað­ur­inn seg­ist vera viss um að hann hafi verið ráð­inn til íslenska fyr­ir­tæk­is­ins og sendur til erlendu borg­ar­innar gagn­gert til að auð­velda fram­hjá­haldið á Íslandi.

Hann starf­aði hjá fyr­ir­tæk­inu um sjö mán­aða skeið, frá því í apríl 2003 þar til í des­em­ber, en þá hafði hann áttað sig á sam­bandi kon­unnar við hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins. Í kjöl­farið slitn­aði upp úr hjóna­bandi manns­ins og kon­unnar sem saman áttu eitt barn. Hann seg­ist telja það hafa verið „sam­an­tekin ráð“, hjá auð­mann­inum og íslenska fyr­ir­tæk­inu sem hann starf­aði hjá, að halda honum sem mest frá Íslandi og kom hann aðeins einu sinni til lands­ins á þessum sjö mán­uðum. Vinnu­veit­andi hans sagði honum að mik­il­vægt væri að hann dveldi í borg­inni á meðan verkið sem hann vann að væri óklárað. „Þetta voru sam­an­tekin ráð, ekki bara hjá þeim, heldur líka hjá henni. […] Þriggja mán­aða verk­efni teygð­ist yfir í meira en sjö mán­uði. Við bara biðum á launum á meðan því verkið var stopp. Af hverju hékk ég þarna úti í sjö mán­uði? Þetta situr svo­lítið mér: Þú mátt ekki koma heim, við viljum bara hafa þig þarna úti og við borgum þér bara fyrir það. Ég skildi ekki af hverju ég mátti ekki koma heim.“

Maðurinn var með góð laun — miklu hærri en hann hafði nokkru sinni verið með áður — fyrir vinnu sem ekki krafð­ist lang­skóla­náms. Á þessum tíma var mað­ur­inn ánægður með sinn hlut. Hann fékk að reyna íslenska góð­ærið í erlendri heims­borg, vera þátt­tak­andi í útrásinni með óbeinum hætti og hafði fullar hendur fjár. „Ég lifði eins og kóngur. Ég von­aði bara að þetta myndi engan endi taka. Eftir sjö mán­aða vinnu kom ég aftur heim til Íslands með tíu eða tólf millj­ónir í vas­anum, þegar ég var búinn að borga allan kostnað og svona. Mér var borgað mjög ríf­lega.“

Til stóð að mað­ur­inn fengi annað verk­efni hjá íslenska fyr­ir­tæk­inu í erlendu borg­inni þegar þess­ari vinnu hans væri lokið. Í einu heim­sókn­inni til Íslands á þessu sjö mán­aða tíma­bili átt­aði hann sig hins vegar á sam­bandi eig­in­konu sinnar við auð­mann­inn og gekk á hana með það. Þetta var í nóv­em­ber 2003:

Ég var þarna í sex mán­uði, allt þar til ég fer heim til Íslands og sé sms frá honum þar sem hann tjáir kon­unni minni ást sína eftir að hún var búin að vera á fylliríi með vinnu­fé­lög­unum að hennar sögn. Hún hafði sofnað heima hjá okkur en svo pípir sím­inn hennar klukkan 3 eða 4 að nóttu til og ég sé þessi skila­boð frá honum. Þá átti ekk­ert að hafa verið að ger­ast en hún þurfti samt að hugsa sig um þegar ég vakti hana og gekk á hana með þetta. Svo kom bara skiln­aður eftir að ég hafði farið aftur út að vinna í mánuð. Það stóð til að ég fengi annað verk­efni frá fyr­ir­tæk­inu þarna skömmu eftir þetta en þá var ég ekki lengur inni í mynd­inni. Svo var bara allt í einu köttað á allt, og þeir hættu meira að segja að heilsa mér. Af hverju ættu þeir ekki að halda áfram að tala við mig eftir að þetta gerð­ist? Ef þú hættir að heilsa ein­hverjum þá hefur þú eitt­hvað að fela, það er ein­hver skömm sem fylgir því. Þeir vissu upp á sig skömm­ina og þeir vissu að þeir hefðu verið óheið­ar­legir. Þetta var alveg ofboðs­lega rotið. Hver myndi vilja gera ein­hverjum eitt­hvað svona?

Brot úr bók­inni birt­ist líka í Kjarn­anum. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár