Topp fimm: umdeildustu frumvörp og tillögur

Rík­is­stjórnir fá umboð til að hrinda stefnu­málum sínum í fram­kvæmd eftir að kosn­ingum er lokið. Þeim er einnig falið að koma fram fyrir hönd þjóðar og taka aðrar ákvarð­anir sem kannski voru ekki fyr­ir­séðar þegar talið var upp úr kjör­köss­unum. En oft á tíðum snú­ast verk rík­is­stjórna mun meira um að hrinda málum í fram­kvæmd sem lítið eða ekk­ert var rætt um í aðdrag­anda kosn­inga. Og þau mál sem sann­ar­lega var rætt um í bar­átt­unni verða útvötnuð þegar þau loks rata á fram­kvæmda­stig. Kjarninn tók saman þau fimm frum­vörp sitj­andi rík­is­stjórnar sem hafa valdið mestum deilum.

5 Nátt­úru­vernd­ar­lög felld úr gildi

Rétt fyrir þing­lok vorið 2013 voru sam­þykkt ný nátt­úru­vernd­ar­lög og áttu þau að taka gildi 1. apríl 2014. Sigurður Ingi Jóhanns­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, til­kynnti í sept­em­ber sama ár að hann hygð­ist aft­ur­kalla lögin og leggja fram nýtt frum­varp síðar, meðal ann­ars eftir að hafa sam­ráð við hags­muna­aðila. Þetta olli miklum deilum og á end­anum náð­ist sátt í umhverfis- og sam­göngu­nefnd um að ganga frá nefndar­áliti þar sem gild­is­töku lag­anna var frestað til 1. júlí 2015 í stað þess að þau yrðu felld úr gildi. Þessi sögu­lega sátt reynd­ist þó ekki nóg til að friða marga umhverf­is­vernd­ar­sinna og í mars síð­ast­liðnum hlóðu hin heims­frægu Björk, Patti Smith og leik­stjór­inn Darren Aronof­sky í vit­undar­vakn­ingar- og fjár­öfl­unar­tón­leika í Hörpu ásamt fjölda ann­arra íslenskra lista­manna vegna máls­ins. Ein krafa hóps­ins var að lögin tækju gildi 1. apríl. Við henni var ekki orðið.

Lestu topp fimm list­ann í heild sinni í nýjasta Kjarn­anum hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár