Spes: Laug að hún hefði heyrt skothvelli í háskólanum

Hin fimm­tíu og fjög­urra ára gamla Angela Timmons var hand­tekin í gær af lög­reglu­yf­ir­völdum í Suður-Karólínu, eftir að hún sendi dóttur sinni eitt mis­heppn­að­asta apr­ílgabb sög­unnar.

Timmons vinnur á fjár­mála­deild Háskól­ans í Virginíu, en hún ákvað í gríni að senda 34 ára dóttur sinni SMS-skila­boð í gær­morgun um að hún hefði heyrt skot­hvelli í háskól­anum. Dóttir hennar, April, var þá stödd í New York. Hún sendi móður sinni skila­boð til baka í mik­illi geðs­hrær­ingu, en eftir að móðir hennar svar­aði hafði hún sam­band við lög­reglu sem var send á stað­inn í miklu flýti.

Í skól­anum var hins vegar allt með kyrrum kjörum, og var Angela Timmons hand­tekin í kjöl­farið. Hún var færð til yfir­heyrslu og verður kærð fyrir athæfið.

Við yfir­heyrsl­urnar sagði Timmons að um sak­laust apr­ílgabb hefði verið að ræða. Hún hefði oft „grín­ast“ svona við dóttur sína 1. apríl í gegnum tíð­ina.

Ljóst er að hvorki dóttir hennar né lög­reglu­yf­ir­völd kunnu að meta þessa háþró­uðu kímni­gáfu Angelu Timmons.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár