1. sæti yfir afleiki vinstristjórnar: Gjöf á hlut í Landsbankanum

Íslend­ingar eru oft fljótir að gleyma. Vandræði sitj­andi rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í skulda­nið­ur­fell­ing­ar­málum, mak­ríl­deilu­málum, Evr­ópu­málum, kjara­samn­inga­málum og alls kyns öðrum málum hafa dregið athygl­ina frá for­tíð­inni.

Síðasta rík­is­stjórn, mynduð af Sam­fylk­ing­unni og Vinstri-hreyf­ing­unni-grænu fram­boði, var þó ekki með allt sitt á hreinu. Þvert á móti tóku með­limir hennar nokkrar ákvarð­anir sem munu sögu­lega telj­ast með þeim verstu sem íslensk stjórn­völd hafa nokkru sinni tekið. Kjarninn gerði topp fimm lista yfir þær helstu.

1. Ríkið verð­launar starfs­menn Lands­bank­ans fyrir frá­bæra rukkun
Þegar íslenska ríkið samdi við kröfu­hafa gamla Lands­bank­ans í des­em­ber 2009 um skipt­ingu eigna hans fékk ríkið 80 pró­senta hlut í nýja Lands­bank­anum, sem stofn­aður var á rústum hins gamla. Þessi hlutur gat hækkað umtals­vert ef vel gengi að inn­heimta tvö lána­söfn, sem heita Pony og Pegasus. Afrakstur þeirrar inn­heimtu átti að renna til gamla Lands­bank­ans og hlutur rík­is­ins myndi vaxa upp að 97,9 pró­sentum ef end­ur­heimtir yrðu góðar. Afgang­inn, 2,1 pró­sent, áttu starfs­menn nýja Lands­bank­ans að fá í verð­laun fyrir vel heppn­aða rukkun. Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, skrif­aði undir samn­ing­inn fyrir hönd íslenska rík­is­ins.
Nið­ur­staðan varð sú að end­ur­heimtir urðu með hæsta móti og starfs­menn­irnir fengu umræddan hlut gef­ins. Miðað við eig­in­fjár­stöðu Lands­bank­ans um síð­ustu ára­mót var innra virði hlut­ar­ins um 4,7 millj­arðar króna. Hluta eign­ar­innar verður haldið eftir til að gera upp skatta, gjöld og annan kostnað. Starfs­menn­irnir munu fá um 144 millj­ónir króna í arð vegna eignar sinnar á þessu ári og verða þar með einu starfs­menn fyr­ir­tækis í eigu rík­is­ins sem fá greiddan arð vegna hluta­bréfa sem þeir fengu gef­ins.

Smelltu hér til að lesa topp fimm list­ann í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár