2. sæti yfir afleiki vinstristjórnar: Sparisjóðurinn í Keflavík

Íslend­ingar eru oft fljótir að gleyma. Vandræði sitj­andi rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í skulda­nið­ur­fell­ing­ar­málum, mak­ríl­deilu­málum, Evr­ópu­málum, kjara­samn­inga­málum og alls kyns öðrum málum hafa dregið athygl­ina frá for­tíð­inni.

Síðasta rík­is­stjórn, mynduð af Sam­fylk­ing­unni og Vinstri-hreyf­ing­unni-grænu fram­boði, var þó ekki með allt sitt á hreinu. Þvert á móti tóku með­limir hennar nokkrar ákvarð­anir sem munu sögu­lega telj­ast með þeim verstu sem íslensk stjórn­völd hafa nokkru sinni tekið. Kjarninn gerði topp fimm lista yfir þær helstu.

2. Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík
Spari­sjóð­ur­inn í Keflavík var ónýt fjár­mála­stofnun fyrir banka­hrunið. Það var meðal ann­ars stað­fest í svartri skýrslu sem Fjár­mála­eft­ir­litið vann um hann og var skilað inn mán­uði áður en allt hrundi. Samt var ákveðið að leyfa sjóðnum að lifa áfram eftir banka­hrun og ráða­menn töl­uðu um hann sem verð­andi hryggjar­stykki í nýju spari­sjóða­kerfi. Það sem verra var er að hann hélt áfram að safna inn­lánum með þeim afleið­ingum að tapið vegna hans jókst stór­kost­lega. Alls fékk sjóð­ur­inn að lifa í 30 mán­uði eftir banka­hrunið þrátt fyrir að rekstr­ar­for­sendur hans hafi algjör­lega brostið þá. Á því tíma­bili tókst honum að tapa 46,6 millj­örðum króna.
Þegar sjóð­ur­inn fór loks form­lega á höf­uðið í apríl 2010 var nýr spari­sjóður stofn­aður á grunni þess gamla, SpKef. Ríkið setti 900 millj­ónir króna inn í hinn nýja sjóð sem eigið fé. Tæpu ári síðar varð ljóst að nýi sjóð­ur­inn ætti sér ekki við­reisnar von og SpKef var rennt inn í Lands­bank­ann. Kostn­aður skatt­greið­enda vegna beins kostn­aðar, vaxta og eig­in­fjár­fram­laga til Spari­sjóðs­ins í Keflavík varð á end­anum 26,1 millj­arður króna.

Smelltu hér til að lesa topp fimm list­ann í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár