3. sæti yfir afleiki vinstristjórnar: Landsdómur

Íslend­ingar eru oft fljótir að gleyma. Vandræði sitj­andi rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í skulda­nið­ur­fell­ing­ar­málum, mak­ríl­deilu­málum, Evr­ópu­málum, kjara­samn­inga­málum og alls kyns öðrum málum hafa dregið athygl­ina frá for­tíð­inni.

Síðasta rík­is­stjórn, mynduð af Sam­fylk­ing­unni og Vinstri-hreyf­ing­unni-grænu fram­boði, var þó ekki með allt sitt á hreinu. Þvert á móti tóku með­limir hennar nokkrar ákvarð­anir sem munu sögu­lega telj­ast með þeim verstu sem íslensk stjórn­völd hafa nokkru sinni tekið. Kjarninn gerði topp fimm lista yfir þær helstu.

3. Lands­dómur
Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu í skýrslu sinni að nokkrir íslenskir ráð­herrar hefðu sýnt af sér van­rækslu í starfi í aðdrag­anda hruns­ins. Þing­manna­nefnd sem skipuð var til að fjalla um skýrsl­una komst að þeirri nið­ur­stöðu í sept­em­ber 2010 að ákæra ætti fjóra fyrr­ver­andi ráð­herra, þau Geir H. Haarde, Árna Mathiesen, Ingi­björgu Sólrúnu Gísla­dóttur og Björgvin G. Sig­urðs­son, fyrir Lands­dómi vegna þess­arar van­rækslu.
Þegar alþing­is­menn kusu um málið varð nið­ur­staðan hins vegar sú að ein­ungis Geir var kærður. Málið var rammpóli­tískt og allt varð hrein­lega vit­laust þegar nokkrir þing­menn Sam­fylk­ingar ákváðu að segja já við ákæru á hendur ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks­ins en hlífa sínum flokks­mönnum. Lands­dóms­mál­inu lauk með því að Geir var fund­inn sekur um einn ákæru­lið en þeir voru upp­haf­lega sex. Honum var ekki gerð refs­ing. Geir kærði máls­með­ferð­ina til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, sem ætlar að taka málið fyrir.

Smelltu hér til að lesa topp fimm list­ann í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár