4. sæti yfir afleiki vinstristjórnar: VBS

Íslend­ingar eru oft fljótir að gleyma. Vandræði sitj­andi rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í skulda­nið­ur­fell­ing­ar­málum, mak­ríl­deilu­málum, Evr­ópu­málum, kjara­samn­inga­málum og alls kyns öðrum málum hafa dregið athygl­ina frá for­tíð­inni.

Síðasta rík­is­stjórn, mynduð af Sam­fylk­ing­unni og Vinstri-hreyf­ing­unni-grænu fram­boði, var þó ekki með allt sitt á hreinu. Þvert á móti tóku með­limir hennar nokkrar ákvarð­anir sem munu sögu­lega telj­ast með þeim verstu sem íslensk stjórn­völd hafa nokkru sinni tekið. Kjarninn gerði topp fimm lista yfir þær helstu.

4. Versti Banki Sögunnar
VBS Fjár­fest­ing­ar­banki fékk 26,4 millj­arða króna fyr­ir­greiðslu frá rík­is­sjóði í mars 2009, mán­uði eftir að rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og VG tók við. Bankinn núvirti 9,4 millj­arða króna af henni, færði sem eign og gat þannig sýnt fram á sýnd­ar­heil­brigði. Með því keypti VBS sér líf­tíma sem hann stóð, væg­ast sagt, ekki undir.
VBS fór loks í þrot í mars 2010. Lýstar kröfur í búið voru 48 millj­arðar króna og ljóst að ein­ungis brota­brot fæst upp í þær. Síðar kom í ljós að staða VBS hafði verið svo slæm á þeim aukna líf­tíma sem ríkið veitti honum, og var meðal ann­ars nýttur í ýmiss konar gjörn­inga sem kröfu­hafar, slita­stjórn og ákæru­valdið hafa síðar þurft að reyna að vinda ofan af og/eða upp­lýsa um, að Seðla­banki Íslands neydd­ist til að lána bank­anum 53 millj­ónir króna í ágúst 2009 til að hann gæti borgað laun. Morg­un­ljóst virð­ist hafa verið að VBS, sem stundum er sagður skamm­stöfun fyrir Versta Banka Sögunnar, átti aldrei mögu­leika á að lifa af og því er óskiljan­legt að rík­is­stjórn þess tíma hafi veitt honum leng­ingu í heng­ing­ar­snör­unni.

Smelltu hér til að lesa topp fimm list­ann í nýj­ustu útgáfu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár