Leiðrétting á forsendubresti brot af því sem lofað var

Leið­rétt­ing á for­sendu­brest­inum svo­kall­aða er 6-8,5 pró­sent sam­kvæmt dæmum sem birt voru á heima­síðu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í morgun, sam­kvæmt útreikn­ingum sér­fræð­inga sem Kjarninn leit­aði til. Þegar skulda­nið­ur­fell­ing­ar­til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar voru kynntar 30. nóv­em­ber var full­yrt að leið­rétt­ingin yrði 13 pró­sent. Því er leið­rétt­ingin ein­ungis brot af því sem þá var talað um að hún yrði.

Þegar „Leið­rétt­ingin“, aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í skulda­málum heim­ila, var kynnt í Hörpunni í lok nóv­em­ber 2013 full­yrtu Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að í aðgerð­unum fælist 13 pró­sent leið­rétt­ing á vísi­tölu neyslu­verðs til verð­trygg­ingar. Hinn svo­kall­aði for­sendu­brestur yrði því leið­réttur um 13 pró­sent og kostn­aður við þá lækkun yrði um 80 millj­arðar króna vegna beinna nið­ur­færslna á höf­uð­stól sem myndi greið­ast úr rík­is­sjóði auk þess sem þjóð­inni gæf­ist kostur á því að eyða 70 millj­örðum króna af sér­eigna­sparn­aði sínum í að borga niður hús­næð­is­lán skatt­frjálst. Allt í allt yrðu þetta 150 millj­arðar króna sem færu í nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána, ann­ars vegar úr rík­is­sjóði og hins vegar af sér­eign­ar­sparn­aði lands­manna.

Fyrir skemmstu var útfærsla á aðgerð stjórn­valda kynnt og enn stóð til að heild­ar­um­fang hennar yrði 150 millj­arðar króna. Til að sú tala næð­ist var búist við 92 pró­sent þátt­töku. Í morgun voru síðan birtir útreikn­ingar dæma vegna lækk­unar höf­uð­stóls hús­næð­is­lána á heima­síðu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Um er að ræða fimm dæmi sem sýna áhrif lækk­unar höf­uð­stóls vegna nið­ur­fell­inga sem greiddar verða úr rík­is­sjóði og áhrif þess að fólk noti sér­eigna­líf­eyr­is­sparnað sinn til að borga niður hús­næð­is­lán. Dæmin eru eft­ir­far­andi:

Kjarninn fékk sér­fræð­inga á fjár­mála­mark­aði til að reikna út hversu mikil leið­rétt­ing á vísi­tölu neyslu­verðs til verð­trygg­ingar væri sam­kvæmt þessum dæmum. Nið­ur­staða þeirra var að „leið­rétt­ingin“ væri á bil­inu 6-8,5 pró­sent, eða tölu­vert frá þeim 13 pró­sentum sem lofað var í nóv­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár