Á endanum yfirgefa tækifærin okkur

Ótrúleg fyr­ir­tæki hafa byggst upp á Íslandi með hug­viti Íslend­inga. Nú horfa þau mörg hver, í mik­illi alvöru, fram á að geta ekki lengur starf­rækt höf­uð­stöðvar sínar hér­lendis. „Hjartað“ í rekstr­inum fær ein­fald­lega ekki það súr­efni sem til þarf svo það slái í réttum takti. Og sjúk­dóm­ur­inn sem hrjáir það er að langstærstu leyti heima­til­bú­inn.

Þarna er átt við fyr­ir­tæki eins og Marel, Össur og CCP. Þau hafa þurft að sætta sig við ýmis­legt á eft­ir­hrunsárum hafta til að halda tengsl­unum við Ísland en nú virð­ast ætla að verða vatna­skil. Útspil stjórn­valda um að ætla að draga til baka aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu var síð­asta hálm­stráið hjá mörgum sem tengj­ast þessum fyr­ir­tækjum. Með því að mögu­leik­anum á aðild væri haldið lif­andi var í það minnsta von um að Ísland gæti tengt sig alþjóð­legum mörk­uðum og mynt. Nú telja þeir að sá mögu­leiki sé horf­inn og það er ljóst á sam­ræðum við fólk í kringum hlut­hafa fyr­ir­tækja í verð­mæta­sköpun að bar­áttan fyrir því að halda höf­uð­stöðvum þess­arra fyr­ir­tækja á Íslandi er að tap­ast.

Vaxa erlendis

Ástæður þessa eru ein­faldar og vel þekktar. Öll fyrir­tækin sem um ræðir eru í alþjóð­legri starf­semi. Öll vaxtar­tæki­færi þeirra liggja ann­ars staðar en á Íslandi. Öll eru með umfangs­meiri starf­semi erlendis en á Íslandi. Öll eru að mestu með útlenda fjár­mögnun sem er á mun betri kjörum en þeim bjóð­ast nokkru sinni á Íslandi. Öll gera upp og greiða starfs­mönnum sínum í öðrum gjald­miðli en íslensku krón­unni. Öll myndu vera sam­keppn­is­hæf­ari um starfs­fólk ef þau væru stað­sett í Banda­ríkj­unum, Kanada eða á meg­in­landi Evrópu. Stórir hlut­hafar í öllum þeirra eru erlendir aðilar. Einu ástæð­urnar sem eru fyrir því að þessi fyr­ir­tæki eru enn með höfuð­stöðvar á Íslandi eru ein­fald­lega þær að til­vera þeirra byggir á hug­myndum sem Íslend­ingar fengu, þeim er stýrt af Íslend­ingum og til­finn­inga­tengslin við heima­hag­anna gera flutn­ing þeim mun þung­bær­ari.

Það er samt sem áður ekki langt síðan risa­stórt alþjóð­legt fyr­ir­tæki, með sterkar rætur á Íslandi, reif sig upp og flutti höf­uð­stöðvar sínar til Zug í Sviss þar sem skatta­legt hag­ræði er mun meira og, sam­kvæmt þáver­andi for­stjór­anum Claudio Albrecht, mun hent­ugra var að ná í „fólk með alþjóð­lega reynslu til að starfa þar“. Þetta gerð­ist árið 2011 og fyr­ir­tækið sem flutti heitir Actavis.

Uppgjör þrota­búa skiptir miklu máli

Með hverjum deg­inum sem Ísland er fast í höftum og tak­mörk­unum íslensku krón­unnar minnka lík­urnar á því að snúið verði af þess­ari brott­far­ar­leið hug­vits­fyr­ir­tækj­anna okkar. Og það eru ekki bara Evr­ópu­málin sem spila þar inn í, þótt þau hafi markað vatna­skil. Alls­herj­ar­á­ætlun stjórn­valda varð­andi upp­gjör á þrota­búum föllnu bank­anna, sem er nátengt mögu­leikum Íslands á að lyfta nokkru sinni gjald­eyris­höftum, spilar líka stóra rullu. Sú áætlun sem flestir innan íslensks við­skipta­lífs virð­ast sann­færðir um að hrint verði í fram­kvæmd snýst um að keyra þrota­búin í þrot og láta þau greiða út í íslenskum krónum sem dótt­ur­fé­lag Seðla­banka Íslands leysir til sín frá kröfu­höfum með miklum afslætti en úthlutar síðan aftur til inn­lendra aðila. Á meðal þess­ara eigna eru Arion banki og Íslands­banki, sem eru að mestu leyti í eigu þrota­búa fyr­ir­renn­ara sinna.

Vænt­ingar hug­mynda­fræð­inga þess­arar leiðar eru að með þessu verði hægt að ná stórum hluta eigna þrota­bú­anna undir yfir­ráð Seðla­banka Íslands. Áður en ráð­ist verður í þessa aðgerð á hins vegar að skipta út stjórn­endum bank­ans til að stefna hans gangi meira í takt við stefnu ráða­manna.

Þetta er skoðun sem er að finna víða í atvinnu­líf­inu. Hún er meðal ann­ars sett fram í tölvu­pósti frá Helga Magn­ús­syni, vara­for­manni næst­stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins, til ýmissa áhrifa­manna í íslensku við­skipta­lífi sem Kjarninn birtir í dag. Hann telur að raun­veru­lega ástæðan að baki breyt­ingum á lögum um Seðla­banka Íslands sé að koma eigi Arion banka og Íslands­banka í hend­urnar á ann­ars vegar fram­sókn­ar­mönnum og hins vegar ein­hverjum sem séu hand­gengnir Sjál­stæð­is­flokknum. Og þetta verði að ger­ast á góðu verði. „Helm­inga­skipta­mórall­inn er enn í fullu gildi,“ segir Helgi.

Við­spyrna við­búin

Kröfu­hafar föllnu bank­anna ætla þó ekki að taka þessum tíð­indum þegj­andi. Margir þeirra eru með stór veð­mál undir hér­lendis og hafa fjár­fest víða ann­ars staðar á Íslandi en í kröfum á fallna banka. Þeir eru farnir að búa sig undir að fara í hart við íslensk stjórn­völd verði gjald­þrota­leiðin farin. Aðgerðir þeirra munu að ein­hverju leyti snú­ast um að koma í veg fyrir að erlendar eignir föllnu bank­anna verði fluttar til Íslands á grund­velli skila­skyldu Seðla­bank­ans. Þeim verður hrint í fram­kvæmd fyrir erlendum dóm­stólum.

Þeir kröfu­hafar sem eiga „gömlu snjó­hengj­una“, á fjórða hund­rað millj­arða króna af kvikum krónum sem eru fastar í skulda­bréfum og inn­stæðum, sýndu klærnar um dag­inn þegar þeir komu í veg fyrir að fé kæm­ist inn til Íslands i gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans með því að bjóða þannig að Seðla­bank­inn gat ekki tekið til­boðum þeirra. Sá ógagn­sæi hópur sem á þessar eignir er reyndar tal­inn mjög fámennur og að hluta til sam­an­settur af Íslend­ingum sem ómögu­legt er að fá upp­lýs­ingar um hverjir eru. En þetta olli því að mörg fjár­fest­ing­ar­verk­efni á Íslandi sem höfðu beðið eftir afslátt­ar­krónum fjár­fest­inga­leið­ar­innar þurftu að fara á ís fram að næsta útboði.

Framtíð hug­mynda er ann­ars staðar

Sá leikur sem stendur yfir mun hafa gríð­ar­leg áhrif á fram­tíð Íslands. Aðferða­fræði stjórn­valda í bar­átt­unni fyrir afnámi hafta virð­ist snú­ast um að leggja mikið undir og búast við stórum vinn­ingi. En ef veð­málið tap­ast mun Ísland sitja ein­angrað í súp­unni. Hér verður til staðar hag­kerfi með ónýta mynt, áfram­hald­andi gjald­eyr­is­höft og litla mögu­leika á alþjóð­legum fjár­mögn­un­ar­mörk­uðum sem hvílir á örfáum auð­linda­geirum og bindur fram­tíð­ar­vonir sínar við skipa­flutn­inga á norð­ur­slóðum og mögu­legan olíufund á Dreka­svæð­inu.

Skapandi iðn­fyr­ir­tæki munu ekki þríf­ast hér. Þau sem eru fyrir munu fara og nýju sprot­arnir sem spretta upp munu skrá sig í Delaware eða annarri skattapara­dís. Nú þegar er það raunin með mörg þeirra íslensku sprota sem hafa fótað sig á erlendum vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár